Mánudagur:
Á mánudaginn fengum við afhent heimapróf um efnafræði sem við áttum að skila á fimmtudaginn. Við fengum allan tímann til að vinna í prófinu. Prófið var með m.a. krossspurningar, fjölvalsspurningar og ritgerðarspurningar.
Miðvikudagur:
Á miðvikudag skipti Gyða okkur í tveggja manna hópa. Ég og Jónas vorum saman. Við áttum að velja okkur efni á lista hjá Gyðu sem við áttum að læra um. Við völdum erfðagalla. Erfðagalli er stökkbreyting í geni sem erfist. T.d. er Downs og tegund af brjóstakrabbameini. Sumar stökkbreytingar geta hafa verið meinlausar fyrir 1000 árum en breyst í erfðagalla við breyttar aðstæður. Flestu algengu erfðagallar nú til dags hafa komið fram útaf breytingum á lífi manna síðustu hundruð ár.
Fimmtudagur:
Á fimmtudag voru allir hóparnir með umræðu í tímanum um það sem við lærðum í tímanum áður. Hóparnir sögðu frá því sem þeir hefðu lært og hinir spurðu svo spurninga. Svo skilaði ég heimaprófi.
Fréttir: