Mánudagstíminn var fyrirlesrartími þar sem við rifjuðum það sem kunnum þegar fyrir okkur varðandi rafmagn og annað tengt því. Í dag var stöðvavinna. Ég og Júlía prófuðum forrit í pHet þar sem við nudduðum blöðru við peysu og létum hana festast við vegg. Við sáum raf-ogróteindirnar í öllum hlutunum þremur. Þegar blaðran straukst við peysuna fóru allar rafeindirnar yfir í blöðruna og þegar hún var snerti veggin drógust rafeindirnar í henni og róteindirnar í veggnum saman, en rafeindirnar í honum ýttust frá þeim í blöðrunni. Þetta sýndi á mjög sniðugan og skýran hátt hvernig stöðurrafmagn virkar og hversvegna blöðrur festast við veggi eftir núning. Við reyndum líka að búa til rafeindasjá, en það gekk ekki. Svo bættum við inn á hugtakakortið. Ég gluggaði í efnafræðiglærurnar mínar, minninu mínu og ætla að fræða ykkur um það sem ég fann þar um frumeindir, auk þess sem að við erum búin að vera að læra í þessum hlekki
- Róteindir og nifteindir eru í kjarna frumeindar
- Rafeindir sveima um hvolf frumeinda
- Ysta hvolfið heitir gildishvolf og rafeindinar þar nefnast gildisrafeinirBara tvær rafeindir komast á innsta hvolfið, hin taka upp í átta
- Þegar rafeind flytjast úr stað myndast orka sem kölluð er rafmagn
- Þegar rafeindirnar færast úr einum hluti í annan og rafmagnið safnast saman í honum myndast svokallað stöðurafmagn
- Það fer ekki úr hlutnum fyrr en hann hefur komist í snertingu við annan hlut.
- Þess vegna fáum við stuð endrum og eins þegar að við snertum annað fólk eða hluti
- Farvegur rafeinda þegar þær fara á flakk kallast straumrás og þarf að vera lokuð til að rafmagn berist
- Rofar opna og loka straumrásum.
- Leiðarar eru efni sem að flytja rafeindir og færa þannig rafmagn úr stað.
- Málmur er dæmi um góðan leiðara, þótt þeir geri það misvel.
- Tré leiðir ekki, en vegna hitans þá ´kviknar í þeim ef þau verða fyrir eldingu, svo varast skal að leita skjóls undir þeim í þrumuveðri (og þá meina ég :alls ekki gera það)
- Elding er dæmi um stöðurafmagn. Agnir í skýjum núast saman og við það myndast stöðurafmagn. Þegar það verður of mikið af því losa skýin sig við það í formi rafstraums, hita og ljóss sem kallast eldingar.
- Eldingavarar eru málmprik sem að eru sett ofan á hús og annað til að verja þau gegn eldingum. Þau virka þannig að þau leiða rafmagnið í eldingunni niður í jörðina, í staðin fyrir í húsið eða hvað það er sem að hann er festur við.
- Eldingavarar verða að vera á hæðsta punkti þess hluts sem hann ver, annars sækja eldingarnar eitthvert annað, því þær dragast alltaf að hæsta punktinum sem þær finna
- Eldingavarar verða að vera úr efni sem að leiðir rafmagn, annars virka þeir ekki, því að eldingum slær bara niður í hluti sem að eru úr efni sem að leiðir.
- Þrjár leiðir eru til að hlaða hlut: rafhrif, núningur og leiðing
- Rafhrif er það þegar óhlaðin hlutur kemst nálægt hlöðnum hlut og rafeindirnar hreyfa sig úr stað og dragast að hlaðna hlutnum
- Leiðing er þegar tveir hlutir snerstast og rafeindir annars fara yfir í hinn
- Núningur er þegar tveir hlutir nuddast saman og rafeindinar flytjast yfir þannig að annar verður + hlaðin og hinn – hlaðinn
Þar sem að ég hef sagt svo margt um eldingar ætla ég að sýna ykkur frétt um afleiðingar þeirra.
Þar sem að við vorum að tala um Eiffel turnin í mánudagstímanum (eða var það miðvikudagstímanum) Myndin er tekin af vefnum Totally cool Pix. Þar er að finna margar rosalegar flottar eldingamyndir. Á einni þeirra sést bæði elding og spegilmynd hennar á glerveggi á byggingu.





