Dýrafræði :)
í þessari viku vorum við að horfa á mynd og gera sjálfspróf
- Dýr – Fjölfrumungar
- Seildýr – hryggdýr
- Spendýr – legkökuspendýr
- Prímatar – fremdardýr
- Homo
- Homo sapiens ( Homo sapiens sapiens)
Dýr – feikileg fjölbreytni
- Vísindamenn sem rannsaka dýr kallast dýrafræðingar
- Nú hefur yfir 1.000.000 tegunda verið greindar, flokkaðar og gefið heiti.
- mikill fjöldi tegunda er ekki uppgötvaður ennþá.
- Dýrum skipt í hópa eftir skyldleika.
Ytri og innri frjóvgun.
- Ytri frjóvgun
- Fiskar og froskdýr
- Hrogn og svil koma saman í vatni
- Innri frjóvgun
- skriðdýr, fuglar og spendýr
- Egg frjóvgast inni í líkama kvendýrs.
- Egg skriðdýra og fugla fá um sig skurn sem verndar þau t.d. gegn þurrki
- Spendýr fæða lifandi unga.
Hryggleysingjar – Hryggdýr
- Dýr eru ófrumbjarga, fjölfruma lífverur úr frumum sem hafa ekki frumuvegg um sig
- Stærsta fruma í nokkru dýri er blóminn (rauðan) í strútseggi, á stærð við appelsínu.
- Dýraríkið skiptist í tvær megindeildir:
- Hryggleysingja
- Hryggdýr
- Hryggleysingi er dýr sem er án hreyggs.
- hryggdýr eru þau dýr sem hafa í líkamanum burðarsúlu sem nefnist hryggur.
Svampdýr
- Svampdýrin eru elstu fjölfruma dýrin sem nú byggja á jörðina.
- Hver einasta fruma vinnur sjálfstætt.
Holdýr
- Öll holdýr hafa eitt meltingarhol og á því aðeins eitt op. Um opið fer bæði næring og úrgangur. Umhverfis opið eru oft griparmar og á þeim eru sérstakar frumur sem kallast brennifrumur eða stingfrumur.
- Holdýr búa yfir sérhæfðum vefjum t.d. taugavef.
- Geta æxlast með kyn- og kynlausri æxlun- Knappskot.
- Holdýr eru samhverf dýr.
- Dæmi: kóraldýr, marglyttur, armslöngur og sæfæiflar.
Lindýr – mjúk dýr með harða skel
- Meginhluti líkamans er bolur með helstu líffærum og utan um hann er mjúk kápa sem kallast möttull.
- Ysta lag möttulsins myndar skelina og leggur til kalkið hana.
- Mörg eru með vöðvaríkan fót sem er hreyfifæri þeirra.
- Helstu hópar líndýra eru
- Sniglar, samlokur og smokkar.
Heimild fenginn úr glósum.