Vikan og Kraftur :)
Í þessari viku, á mánudaginn vorum við að vinna í skýrlu, og á miðvikudaginn var ég veik svo ég horfði bara á sjónvarpið
Kraftur
Þyngd er mælikvarði á þann þyngdarkraft sem verkar á tiltekinn hlut. Þyngdarkrafturinn er ekki stöðug stærð í alheiminum. Þyngdarkrafturinn er til dæmis rúmlega tvisvar og hálfu sinnum meiri á yfirborði júpíters en hann er hér á jörð. Þyngdarkrafturinn sem ríkir á tunglinu er aðeins um sjötti hluti þyngdarkraftsins á jörð.
Einingin fyrir þyngd er njúton, táknað með N. Þyngd í njútonum er reiknup með því að margfalda massa hlutar í kílógrömmum með fjölda njútona á kílógramm. Hér á jörð er þyngdin 9,8 njúton á hvert kílógramm. Hlutur sem hefur massann 100 kg er því 100 kg sinum 9,8 N/kg = 980 N.
Mynd fengin á Google.
