Sesselja Hansen Daðadóttir
Nei hææ fallegu ;D

Miðvikudaginn 4/1/2012 var vísindavaka. Við völdum okkur í hópa og byrjuðum að hugsa um tilraun til að gera fyrir bekkinn. Ég var með Andreu og Erlu í hóp. Í svona vísindavökum á maður að gera einhverja ákveðna tilraun og sýna hana fyrir bekkinn. Maður getur tekið tilraunina upp, gert plakkat, bækling, skýrslu og margt margt fleira. En það verður að vera allavega ein spurning eins og: virkaði tilraunin, hvort á maður að setja fyrst, skiptir þetta máli og fl.

Fimmtudaginn 5/1/2012 var ennþá vísindavaka. Við fundum tilraun sem við gátum gert og hún hét “eldgos“. Við hugsuðum hvernig við ættum að gera tilraunina og ákvöddum að taka hana upp á myndavél. Við hugsuðum einnig hvernig myndbandið ætti að vera svo að allt myndi vera tilbúið fyrir framkvæmdina :)

Mánudaginn 9/1/2012 var framkvæmdardagur á tilrauninni “eldgos“. Við fórum eftir uppskriftinni eins vel og við gátum en að sjálfsögðu gerðust nokkur mistök, en eldgosið gaus samt! þegar við enduðum á að setja edik og lyftiduft út í þá byrjaði fjallið okkar að gjósa smátt og smátt :) svo núna eigum við bara eftir að klára myndbandið og þá er það tilbúið til að sýna á fimmtudaginn 12/1 :)

Leave a Reply