Þann 30 janúar var tími í náttúrufræði. Sá tími var mjög fræðandi og við lærðum um hljóðstyrk, tónhæð, úthljóð, dopplerhrifin, hermu, hljómblæ, samhliðun og bylgjuvíxl. Gyða sýndi okkur líka myndband af Tacoma Narrow brúnni sem hrundi árið1940 vegna þess að tíðnin í vindinum var sú sama og í brúnni þannig hún fór að sveiflast þangað til að hún hrundi. Miðvikudaginn 1 febrúar sýndi Gyða okkur myndband með tilraun sem kallast Rubins Tube og hún sýndi okkur líka myndband með sand og hvernig mismunandi mynstur hann gerði við mimunandi tíðni sem var mjög flott. Svo sýndi hún okkur eitt skemtilegt myndband með nokkrum ofurhugum sem stukku niður af byggingu í Singapúr og svo fyllti hún fræðslumælinn hjá okkur með nokkrum fréttum
Hér er myndbandið af slysinu á Hindenburg loftbelgnum
