Á mánudaginn var nú bara fyrirlestatími eins og venjulega og við fengum glósur…
Þær voru um Jarðfræðina að sjálfsögðu.
Ég fékk óvart 2x pakka svo að ég ætti að vera komin með þetta alveg á kristartært : )
Glósupakkinn er semsagt bara um
- verðurfræði,
- haffræði,
- Jarfræði,
- Jarefnafræði
- jarðeðlisfræði.
Og svo er svona skemmtileg hugtök.. t.d.
- ljóshraði
- ljósár
- vetrarbrautin okkar
- stjarna
- fastasjarna
- sól
- reikistjara
- pláneta
- tungl.
Einnig er talað um Gróðurhúsaáhrif, Andrúmsloftið og Ósonlagið.( sem ég tók sérstaklega fyrir í fyrra bloggi mínu og er ykkur bent á að leita þangað fyrir frekari upplýsingar)

Heimild mynd 1 : http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4686
Stöðvavinna fimmtudaginn 01.12.11.
Jæja, komin fyrsti desember : ) Nú styttist aldeilis í jólin, og að ég fari til Florida: )
Það eru í raunninni bara tvær vikur eftir að skólanum, fyrir jólafrí : ) Þetta hálfa ár búið að líða hratt : )
Við byrjuðum tíman á því að kíkja á blogg og flott myndbönd frá öðrum nemendum, eftir það kíktum við í stöðvavinnu sem var frekar létt og skemmtileg. Ég vann með Ragnhildi í hóp og við komumst yfir 6 stöðvar.
Þetta eru stöðvarnar sem voru í boði.
Stöð 1.
Hrafntinna myndast við snögga kælingu Líbarítkviku, t.d. á yfirborði hrauna.
Hægt er að finna Hrafntinnu við Hrafntinnuhraunin við Torfajökul.
Hún er alveg kolbikasvört, þó hún geti verið stundum svolítið gráleidd. Hún er alveg glerljándi, við högg sundrast hún í marga mola með hvössum brúnum. : )

Heimild : http://geology.com/rocks/igneous-rocks.shtml
Stöð 2.
1. Fyrsti steinninn í steinasafninu hét Ópall. Hann getur verið verið alskonar á litinn en sá sem við vorum með var grænn.
2. Næst var Silfurberg, þú getur notað Silfurberg til að brjóta upp stafi. ( kemur fræðileg lýsing á silfurbergi á stöð 4)
3. Við tókum næsta steinn sem vavr svolítið merkilegur á litinn. Hann heitir Gismondín og lítur svolítið út eins og hann sé bara venjulegur grár steinn, umvafinn kristöllum. Hann er svakarlega flottur og erfitt að trúa að náttúra Ísland hafi gert þetta listaverk : )
4. Því næst tókum við stein sem ber nafnið Jaspis. Þessi steinn er svakalega fallegur og getur verið alskonar á litinn, í fyrstu héldum við að við værum með Rauðberg, en leiðréttum það nú fljótlega. Þessi steinn er ekki einlitur, vegna þess, þó svo hann sé kanski alveg sléttur er hann með rákir innan með sér sem gefa honum þessi fallegu munstur að innan, sem sést að utan.

Heimild : http://fjola-ben.blogcentral.is/sida/2150752/
Stöð 3.
Eðalsteinar ertu skrautsteinar sem eru svo harðir að þeir rispast ekki við daglega notkun, þeir eru náttúrulegar steindir sem notaðir eru í skrautmuni. Þeir eru með hörku 7 og sjaldgjæft er að steinar með hörku yfir það rispist.
Stöð 4.
Silfurberg er tært afbryggði af kristölluðum kalksteini, og er mjög fágætt utan Íslands. Oft er Silfurberg kallað “ The Icelandic Spar“
Þrátt fyrir nafnið er ekki neitt silfur í Silfurbergi en nafnið fær Silfurbergið hversu silfurtært það er. Silfurberg klofnar vel í tígla og klýfur ljósið í tvo geisla sem sveiflast hornrétt hvor á annan. Þessir eiginleikar greina silfurberg frá öðrum kalksteini.

Stöð 5.
Þar var spurt um friðlýsta steina hér á landi. Við kíktum inná netið og fundum upplýsingar um hvaða steinn væri friðlýstur á Íslandi.
Það kom okkur mikið á óvart að það var einungis 1. steinn fiðlýstur á landinu. Hann heitir Dropasteinn. Það er mjög erfitt að finna upplýsingar á netinu um Dropasteininn og þar sem ég hef ekki bók get ég lítið sagt.
——————————————————————————————–
Á föstudaginn fengum við svo að velja um að vera að blogga í tölvuverinu eða að horfa á mynd í Kvíadal. Ég ákvað að blogga frekar og það gekk rosalega vel