Síðasta vika

Á mánudaginn i síðustu viku byrjuðum við á nýjum hlekk, skrifuðum á hugtakarkortið  , viðfangsefnið er varmi og orka. Siðan var fyrirlestur sem var mest upprifjun eiginlega bara upprifjun svo var ekki gert mikið meira.

Mismunandi form orku

  • Hreyfiorka
  • Stöðuorka
  • Varmaorka
  • Efnaorka
  • Rafsegulorka
  • Kjarnarorka
Síðan er það hiti/kuldi
273 Kelvin eða 0°C er frostmark
373 Kelvin eða 100°c er suðumark
0=K er alkul =273°c
  • Hvorki er hægt að skapa orku né yða henni aðeins breyta mynd hennar
  Eðli Orkunnar
  • Orka er skilgreind sem hæfni til að framkvæma vinnu
  • Orka er grundvallarstærð sem hvert eðlisfræðilegt kerfi hefur að geyma
  • Orka birtist í margvíslegum myndum
Hreyfiorka er sú orka sem hlutir býr yfir sökum hreyfingar sinnar.

Úranus

Geislavirka frumefnið Úraníum er nefnt eftir reikistjörnunni út frá uppástungu frá þýska efnafræðingnum Martin Klaproth sem uppgötvaði frumefnið árið 1789. Það var hins vegar Bode sjálfur sem stakk fyrstur upp á nafninu Úranus.

Áður en heimsókn Voyager 2 höfðu engar mælingar verið gerðar á segulhvolfi Úranusar.

Enginn veit af hverju segulsvið Úranusar er svo einkennilegt.

Líka þótt það sé erfitt og eflaust ómögulegt að greina smáatriði á Úranusi. En það hægt að skoða fjögur af 27 þekktum fylgitunglum hans í gegnum venjulegan áhugamannasjónauka.

Líka þótt það sé erfitt og eflaust ómögulegt að greina smáatriði á Úranusi. En það hægt að skoða fjögur af 27 þekktum fylgitunglum hans í gegnum venjulegan áhugamannasjónauka.

Gögn frá Voyager staðfestu að lofthjúpur Úranusar er 84% vetni og 14% helíúm, sem er svipað hjá Satúrnus.

Hann er úr líkum lofttegundum og Neptúnus. Í sjónauka hefur Úranus grænan blæ yfir sér og undir þykkum lofthjúpi. Hitastigið við yfirborð lofthjúpsins er um -215°C.

Úranus er með níu hringi en þeir eru gerðir úr mjög dökku efni þannig að það er frekar erfitt að sjá þá. Hringarnir líkjast mest hringum Júpíters og Neptúnusar.

 Þeir heita:

ζ (zeta),6,5,4, α (alfa), β (beta), η (eta), γ (gamma), δ (delta), λ (lambda), ε (epsilon), ν (nu), μ (mí), þetta er bara nöfn á 13 hringa.

 

Úranus er sjöunda reikistjarnan frá Sólu og hún 3 stærsta plánetan. Árið 1781 var Úranus uppgötvuð af William Herschel.

Úranus er nógu björt til að sjást með berum augum.

Fjarlægð frá sólu: 2870 milljón km Heimild Skýrslan Mín

 heimild

VikAn

á mánudaginn gerðum við skýrslu um Massa.Kraft og vinnuafl, þá labbaði ég upp stiga 3 sinnum og anna skrifaði niður og andrea tók tímann. Í dag gerðum við tilraun um hröðun, þá vorum við með tennisbolta 1 metra prik og krít til að skrifa niður metrana við köstuðum 5 sinnum og Jóhann skrifaði niður.

Refur

Refur er´lítið dýr sem er í hundaætt og er rándýr.

Litaafbrigði

Tvö meginlitaafbrigði eru til á íslenska heimskautarefnum, annars vegar mórautt litaafbrigði og hins vegar hvítt. Það hvíta er hvítt að vetrinum en grábrúnt að sumri.

Líkleg skýring á felulitum þessum er aðlögunin við árstíðir hér á landi líkt og rjúpan. Refirnir fela sig fyrir aðalóvininum sem hér á landi er einmitt maðurinn . Veiðar á ref eru stundaðar allt árið sökum aðráns hans í gegnum tíðina.

Sértaklega finnst ref gott að gæða sér á æðarfugli, eggjum hans og ungum. Svo voru hænsnabú í hættu og sauðfé bóndans. Með auknu eftirliti og hraustari kindum eru dýrbítar nánast úr sögunni, en það voru tófur kallaðar er lögðust á fé.

Yrðlingur kemur úr gjótuAðlögunarhæfni

Refir eru einu villtu landspendýrin sem ekki hafa verið flutt inn hér á landi af manninum. Talið er að hann hafi verið að elta bráð, í fylgd með hvítabirninum þar sem sannað þykir að þeir hjálpist að við veiðar annað slagið.

Refurinn hefur hins vegar ílengst hér enda nóg af fæðu hér. Má þar nefna sem dæmi fugla, egg, fjörudýr, hrognkelsi og ber á haustin. Með landnámi bættust við ýmsir nýir fæðumöguleikar, sauðfé, mýs, hreindýr og hænur.

Feldur refa

Sú staðreynd að refurinn hefur aðlagast vel vistinni má meðal annars þakka hinum góða feldi sem hann hefur. Feldur refsins er einn af betri feldum sem þekkjast í dýraríkinu, þolir mikinn kulda og er sérstakur að því leyti að hár hans eru hol að innan og einangra dýrið mjög vel.

Rófan á refnum er mjög þykk og til að spara orku þegar hann sefur þá hringar hann sig allan saman, dregur fæturna undir sig og leggur svo skottið yfir leggi sýna og trýni.

Að helga sér óðal

Er mjög mikilvægt í hegðun refa og þegar því er náð virða aðrir refir landamæri hinna. Landamærin merkja þeir með þvagi sínu allt umhverfis óðal sitt og grenið sérstaklega vel. Bæði steggur og tófa sjá um að vernda óðal sitt og bæði sjá þau um umönnun yrðlinga sinna.

Refurinn er fjölskyldudýr og pör halda saman ævilangt þar til annað deyr. Talið er að sökum þess að fengitími tófunnar eru einungis nokkrir dagar á ári þá þori karldýrið ekki að yfirgefa kvendýrið af ótta við að missa af pöruninni.

yrðlingur á loftiAfkvæmin

Yrðlingar vega að meðaltali 70 gr við got. Þeir eru hærðir en blindir og opna augun 15-16 daga gamlir. Á fyrstu þrem vikum ævinnar nærast þeir eingöngu á móðurmjólkinni en taka þá éta kjöt sem báðir foreldrarnir færa þeim.

Tófur virðast yfirleitt venja þá undan sér við 8-10 vikna aldur. Yrðlingar vaxa hlutfallslega hraðar en ungviði flestra annarra rándýra og ná 90% af endanlegri stærð á tæpum 4 mánuðum.

Þeir virðast orðnir töluvert sjálfbjarga við fæðuöflun strax þriggja mánaða og alveg óháðir foreldrum fjögurra mánaða gamlir. Þó kemur fyrir að yrðlingar verði eftir og hjálpi til við næsta got, yfirleitt eru það þá dætur og systur sem hafa þá þannig fórnað eigin möguleikum á að fjölga sér.

Nýtni refa

Refurinn stundar veiðar og síðla sumars og um haust leggur hann sig mikið fram við veiðar til þess að safna vetrarforða. Yfir vetrartímann er oft erfiðara að stunda veiðar og er því refurinn mjög hagsýnn er hann safnar sér forða. Hann grefur í jörðina þann mat sem umfram er. Til að finna aftur matinn merkir hann staðinn með þvagi og getur þannig þefað upp slóðina.

Búrrefir

Búrrefir voru fluttir inn um og eftir 1930 og átti að glæða atvinnumöguleika bændastéttarinnar þar sem sauðfjárræktun og nautgriparæktun voru í lægð. En sífelld eftirspurn virtist vera eftir loðfeldum og búrrefir stærri og með betri feld en villti refurinn.

Ekki er um marga möguleika að ræða hvað varðar litaafbrigði búrrefa en 90 % stofnsins hér á landi er blárefur. Restin er silfurrefur og nokkrir gull- og rauðrefir. Af blárefnum eru ekki nema 10 % hvítrefur/shadow.

Smellið á myndina hér að neðan til að skoða fleiri myndir af refum.

Tófur að vetri          hérna fást upplýsingarnar sem ég tók