Vísindavaka

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Hæ!

Jæja í þessari viku er búin að vera vísindavaka, ég er í hóp með Eyrúni og Hafdísi. Við gerðum svona popptilraun, s.s hvernig er best að poppa popp. Það var mjög gaman að framkvæma þessa tilraun og mjög fyndið. Hér er myndbandið!

Miklihvellur

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Hæ!

Kerfið vill ekki leyfa mér að setja glærusýninguna mína hingað inn :/ Ég skal setja hana inn um leið og ég get.

 

 

Ýmislegt skemmtilegt!

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Halló!,

Í þessari viku höfum við verið að leggja lokahönd á powerpointsýningunna okkar :) Sýningin mín KEMUR hér inná líklega eftir helgi :D

Hey! vissiru að það var tunglmyrkvi á laugardaginn? Ég sá hann reyndar ekki, afþví að ég var sofandi, en ég sá hann í fyrra og hann var mjööög sætur og flottur! Tunglmyrkvinn sem var núna átti að hafa sést best frá Asíu og Ástralíu og smá í Evrópu. Nánar um tunglmyrkvan hér.. (:

Skemmtilegir hlutir:

Free Science films :)

Frétt um almyrkvan/tunlmyrkvan :D

Stellarium, gott forrit sem býður uppá marga möguleika í sambandi við stjörnufræði…

Bless í bili :)

mynd fengin hér!

Miklihvellur (:

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Halló!

Í þessari viku erum við bara búin að vera að vinna í glæru sýningunum okkar (: Eins og þið kannski vitið þá er ég að gera glærur um miklahvell, þessar glærur koma mjöööög lýklega hér inn seinna. Við erum að fara að kynna þær í næstu viku held ég, en á mánud. vorum við að horfa á mynd. Hún fjallaði s.s um stjörnufræði og hubblesjónaukann, þetta var alveg frekar svona flókið efni en ætli maður hafi ekki lært eihv af því :)

Smá svona úr einni glærunni:

Upphaf alheims;

Alheimurinn hefur verið að þenjast og þjappast saman í milljarðir ára. Líklega hefur eitthverskonar sprenging komið þessari þennslu af stað. Sprenging þessi kallast Miklihvellur og þessi sprenging markar upphaf alheimsins. Þegar að Miklihvellur gerðist var alheimurinn vel þjappaður saman. Tími og rúm voru einnig þjöppuð saman, eins og í svartholi. Þá giltu engin eðlisfræðilögmál og vísindamenn geta ekki sagt hvað nákvæmlega átti sér stað þegar að Miklihvellur varð. Vísindi geta heldur ekki sagt okkur hvernig Miklihvellur varð né hvað var fyrir Miklahvell.

heimild:  http://www3.gardaskoli.is/stjornur/mikli.htm

Mynd:http://kooworld.com/wallpaper_creation_universe.jpg

 

já ég þakka fyrir mig (:

Fyrsta bloggið á þessari önn (: stjörnufræði!

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Halló!,

í þessari viku erum við búin að vera að fara svolítið út í stjörnufræðina, skoða vefi og gera verkefni. Við áttum líka að velja okkur eitthvað tengt geimnum til að búa til glærusýningu um, ég valdi Miklahvell.

Jæja, hverjir trúa því að Guð skapaði heiminn? Það er vísindalega sannað að Miklihvellur hefur skapað heiminn. En hvernig getur það verið að ekkert varð að eitthverju, sagt er að það hafi EKKERT verið fyrir miklahvell. Já en af engu kemur ekkert eða er það ekki? Hvernig getur það verið að ekkert verði bara alltí einu alheimurinn í allri sinni mynd? Þetta er mál sem að vísindamenn hafa lengi velt fyrir sér.

Til að sjá betur um þetta smellið hér!

Hérna eru hlutir sem að við skoðuðum í þessari viku!

Stellarium – mæli mjög vel með þessu alveg rosalega gott til að skoða stjörnurnar!

Stjörnukort – með myndum og svona :)

Rosalega gott vídjó um stærðir stjarnanna, ég vissi ekki að það væru til svona margar alveg RISASTÓRAR stjörnur!

Myndir sem hafa verið teknar með Hubblesjónaukanum (:

mynd fengin hér

d-_-b

Síðasta bloggið á þessari önn!!!

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Halló!

Í þessari viku erum við búin að vera að gera ýmislegt skemmtilegt! Síðasta mánudag vorum við að skrifa skýrslu fyrir tilraunina sem ég skrifaði um í síðustu færslu :)

Svo í dag vorum við að gera aðra tilraun, sem gékk út á það að við mældum 25 metra og svo rúlluðum við boltanum eftir fletinum og mældum tíman á hversu hratt boltin rúlla að meðaltali 5 m, 10m og svo framvegis. Skýrslan kemur inná eins fljótt og hægt er :D

Þetta er rosalega góð síða um hröðun sem að skipti miklu máli við gerð skýrslunar!

Hérna er gott myndband um lögmál Bernoulis

- Áslaug

Eplisfræði vika 3

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Halló!

Í þessari viku erum við búin að vera að gera tilraun! Ég var með Ágústi og Eyrúni í hóp. Tilraunin gékk út á það að:…

Við völdum okkur stiga og mældum hæð og lengd stigans. Til að finna út hæð stigans mældum við hæð eins þrepsins og margfölduðum með fjölda þrepana. Til að finna út lengd stigans mældum við lengd hvers þreps og margfölduðum með fjölda þrepa. Svo tókum við tíman á hversu hratt Áslaug labbar upp stigan þrisvar sinnum og hversu hratt hún hleypur upp stigan þrisvar sinnum. Við skráðum það niður í stílabók og reiknuðum meðaltalið, aflið, vinnuna og kraftinn.

smá svona dót sem við þurftum að taka fram í skýrsluni fyrir tilraunina og svona! :)

Meðaltal: tími / fjölda

Afl: Massi (kg) * Hröðun (n/kg) = N

Kraftur (N) * Vegalengd (M) = Nm

Vinna (Nm) / Tíma (sek) = W

skýrslan kemur svo inná í heild sinni seinna :)

-Áslaug

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mynd tekin hér

 

Eðlisfræði vika 2!!

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Halló!,

Í þessari viku erum við búin að vera að skoða eðlisfræðina aðeins betur.

Á mánudaginn vorum við að skoða phet, skoða eðlismassa á nokkrum kubbum og svona :)

Á miðvikudaginn vorum við að svara alveg fuuuult af spurningum um eðlismassa og fl.! Ég, Hafdís, Jón G og Nonni hjálpuðumst að við að finna svörin við spurningunum sem að gátu verið svolítið erfiðar!

Á föstudaginn Vorum við bara að fara yfir svörin við spurningunum og tala um hvað við erum að fara að gera í næstu viku. Við erum eitthvað að fara að gera mælingu með afl og stiga. :)

Mynd hér, þarna inná er fuult um Massa á ensku! :D

-Áslaug

Eðlisfræði!

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Í þessari Viku erum við bara búin að vera að gera ýmislegt sniðugt!.

Á mánudaginn vorum við að gera skýrsluna fyrir krufninguna!

Á Miðvikudaginn vorum við í stöðvavinnu, ég var með Nonna í hóp og við vorum að gera ýmsar tilraunir og athuganir með eðlismassa. Við t.d vorum að mæla með svona vatni og glösum til að finna út massa nokkra steina, við þurftum að vera mjööööög nákvæm. En það endaði samt í smá sulli og skvettum en það var bara gaman! :D

Á Föstudaginn var Gyða með glærupakka fyrir okkur og formúlublað! T.d til að finna út þyngd þínu seigum sem svo að massi minn er 40 kg, til að finna út hver þyngd mín er á jörðinni geri ég 40*9,8 = 392 N sem sagt þá er þyngd mín 392 N. Í rauninni þegar að við stígum á vigt erum við að mæla massa okkar ekki þyngd eins og við höldum flest, massi og þyngd er alls ekki sami hluturinn! Þetta fannst mér merkilegt svo að ég ætla að skrifa sérstaklega um þyngd :)

ÞYNGD: er mælikvarði á þann þyngdarkraft sem verkar á tiltekinn hlut. Þyngdarkrafturinn er ekki stöðug stærð í alheiminum. Þyngdarkrafturinn er t.d rúmlega 2 og 1/2 sinnum meiri á Júpíter en á Jörðu. Þyngdarkrafturinn sem ríkir á tunglinu er aðeins um 6 hluti þyngdarkraftsins á jörðu.

Einingin fyrir þyngd er newton (ekki kg, kg er fyrir massa!), táknað með N. Þyngd í N er reiknuð með því að margfalda massa (Kg) hlutar í kg með fjölda N á kg. Hér á jörðu er þyngdin 9,8 N á hvert Kg. Hlutur sem hefur massann 100 kg er því 100 Kg * 9,8 N/Kg = 980 N.

Já þetta er það sem mér fannst merkilegt af því að ég hef alltaf haldið á þyngd er mæld í Kg en það er víst bara alls ekki þannig! :)

Hún Gyða gaf okkur líka blað með Formúlum sem ég er búin að setja upp í word!, sjá hér : Formúlur í Náttúrufræði

Takk fyrir mig!

Áslaug

p.s heimildir úr glærum!

 

Krufning á mús! :D

Posted by aslauggudny in Annað | Leave a comment

Hæææ!,

Í þessari viku vorum við að setja algjöra lokahönd á ritgerðina og senda hana til Gyðu! :D

Svo vorum við líka að kryfja mús sem átti að vera rotta en svo kom nú í ljós að þetta var bara pínkulítil mús sem við krufðum nú samt. :) Það var alveg frekar gaman en sumir höfðu það bara ekki í sér að kryfja ;) Við þurftum sem sagt að húðfletta músina og skoða líffærin. Það var mjög athyglisvert að komast að því að garnirnar í 8 cm mús eru 25 cm……. hehe :D

mynd tekin hér

- Áslaug