Tilraun-Þurrýs

Á fimmtudaginn gerðum við tilraun í náttúrufræði með þurrís. Við fengum að ráða hvort við vildum skila skýrslu eða bloggi og ég valdi að skila bloggi. Ég var í hóp með Hrafnhildi Jóhönnu og Sóley Söru.

1. Tilraun – Þurrís og sápa
Áhöld: Bakki, skál, tuska, mælikanna, sápa,þurrís og heitt vatn.
Við settum heitt vatn og þurrís ofaní skál. Svo undum við tusku  með sápu og drógum hægt eftir skálbarminum. Þá myndaðist sápukúla yfir skálinni sem stækkaði útaf reyknum frá þurrísnum og sprakk að lokum.

2. Tilraun – Eldur og þurrís
Áhöld: Bakki, kerti, eldspýtur og þurrís.
Á borðinu var bakki með þurrís ofaní. Svo kveiktum við á eldspýtu og settum við þurrísinn þá slokknaði eldurinn. Við prufuðum aftur og aftur en eldurinn slokknaði alltaf. Þetta gerðist vegna þess að þurrís er CO2 sem er til dæmis notað í slökkvitæki. þetta þýðir að CO2 kæfir eldinn.

3. Tilraun – Málmur og þurrís
Áhöld: Bakki, þurrís, plast, peningar og mismunandi málmar.
Við prufuðum að setja allskonar málma við þurrísinn og stundum gerðist ekkert en stundum kom ískur. 50 kallinn gerði mesta ískrið.

4. Tilraun – Sápukúlur og þurrís
Áhöld: Sápukúlur, skál og þurrís
Við blésum sápukúlum ofan í skál með þurrís og þegar sápukúlurnar lentu á þurrísnum frusu þær og sprungu. Þá varð eftir neðri parturinn af sápukúlunni frosinn á þurrísnum, það var soldið nett.

5. Tilraun – Blöðrur og þurrís
Áhöld: Bakki, þurrís, sápa,mjó tilraunarglös og blöðrur
Við settum bæði heitt og kalt vatn í sitt hvort mæliglasið  svo settum við einn þurrís mola í hvert glas og svo settum við blöðru yfir og athuguðum hvor blaðran væri fljótari að blása upp á undan. Heita vatns blaðran blés upp á undan því að þurrísinn gufur  fyrr upp þar sem heita vatnið er því það kemur meiri gufa á styttri tíma í heitu en köldu.

segjum þetta gott í bili Björgvin Ó.

This entry was written by bjorgvino , posted on Miðvikudagur nóvember 16 2011at 09:11 e.h. , filed under Uncategorized . Bookmark the permalink . Post a comment below or leave a trackback: Trackback URL.

Færðu inn athugasemd

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>