Vika 13

Á mánudaginn var fyrirlestur um jarðfræði Hrunamannahrepps. Það var solduið fróðlegt.

Á fimmtudaginn var stöðvavinna ég og Guðjón vorum saman og kláruðum 6 stöðvar hér koma svo stöðvarnar

  1. Hrafntinna – skoða – höggva – hjátrú – lesa – skrifa
  2. Steinasafn – skoða – greina
  3. Steindir – eðalsteinar
  4. Silfurberghvað er svona merkilegt við það?
  5. Friðlýstir steinar  – Náttúrufræðstofnun
  6. Bók – Steinaríkið – Grjót úr geimnum – bls. 40 – 41
  7. Bók – Jörðin og furður hennar – Saga í klettum og steingerfingar bls. 28-31
  8. Mánaðarsteinarmeira

Stöð 1-Hrafntinna

Á þessari stöð vorum vað skoða hrafntinnu. Hrafntinna myndast við rosalega mikinn þrýsting en hrafntinna, líparít og baggalútur er allt sama bergið. Hrafntinna er í afbrigði náttúruglers,, sem myndast íeldgosum þegar feldspashraun kólnar og storknar mjög hratt, en kristallast ekki. Ekki má ruglast á hrafntinnu við eldtinnu. Hrafntinna flokkast sem storku berg og steindarlíki en ekki til steinda þar sem hún er kristölluð. Hrafntinna samanstendur aðalega af kísli CsiO2 eða rúmlega 70%, samsetning hennar er mjög svipuð og granít og líparít. Vegna þess að hrafntinna kristallast ekki. Hvössu hliðarnar hennar geta orðið næstum jafn þunnar og sameind.

 

Stöð 2-skoða-greina.

Á  þessari stöð eigum við að skoða og greina. Hér fann ég Stílbít.Stílbítur myndar staka plötulaga kristalla.

´

Stöð 3-Steindir-Eðal Steindir.

Á þessari stöð eigum við að læra pg lesa um eðalsteindir. Steindir eru flokkaðir eftir hörku á skalanum 1-10. Eðalsteindir rispast ekki við daglega notkun. Talk eða Talkum hafa hörkuna 1. Demantur hefur hörkuna 10. Af algengustu steindum í umhverfinu okkar er kvars með hörkuna 7. Dæmi um eðalsteindir: demantur, rúbínar,smargarðar,zirkónar og tópasar.Verðmæti eðalsteinda fer eftir ýmsu svo sem fegurð,hörku,ljósbroti,slípun og því hversu sjaldgefur steindinn er. Þynd eðalsteinda er gjarnann mæld í karötum. Eitt karat er 0,2 grömm.

 Stöð 4-Silfurberg

Hvað er svona merkilegt við Silfurberg ?

Á þessari stöð á maður að skoða Silfurberg. Það sem er merkilegt að Silfurberg finnst hvergi nema á Íslandi en það var í námu á Helgustöðum og í Hoffelli í Hornafirði. Silfurberg klofnar vel í tígla og klýfur ljósið í tvo geisla sem sveiflast hornrétt hvor á annan. Þessir eiginleikar greina silfurberg frá öðrum kalksteini. Efnasamsetningin er kolsúrt kalk (kalsíum karbónat), Ca[CO3], harkan er 3 og eðlismassan 2,71.

Stöð 5 -Friðlýstir steinar

Á þessari stöð er verið að tala um friðlýsanir, dropasteinar eru einu friðlýstu steinarnir.

Stöð  8-Mánaðarsteinar

Granat dregur nafnið sitt af latneska orðinu “granatus” sem þýðir; líkist fræi.Það nafn kom til þannig að þegar granatkristallar fundust í steinum þá líktust þeir helst fræjum granatepla. Dýrmætustu granatsteinarnir eru þeir sem eru af grænleitri gerð sem er kölluð demantoid (líkist demanti), þeir bera líkan lit og smaragður en hafa ljóma demants. Þessir granat steinar finnast í Úralfjöllum. Þeir fallegustu eru djúprauðir eða purpurarauðir, en þeir koma í næstum öllum litum nema bláum. Algengast er að þeir séu allt frá því að vera appelsínugulir og útí dökkrauða eða purpurarauða. Þeir eru hálfgegnsæir. Samkvæmt kristnum sögnum er rauður granat tákn um fórn krists og samkvæmt kóraninum lýsir granat upp hinn fjórða himinn múslima. Steinninn er sagður vera tákn sannsögli og eftirfylgni en einnig hefur verið sagt að hann geri eiganda sínum kleyft að sjá í myrkri. Það er gömul trú að Nói hafi notað granat til að lýsa upp örkina sína. Egyptar trúðu því að granat væri hægt að nota mulinn í bakstur sem mótefni gegn eitri. Granat táknar eilífa vináttu.

 

 

 

Mynd 1.http://geology.com/rocks/igneous-rocks.shtml

Mynd 2.http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=5709

Mynd 3.http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4098

Mynd 4.http://visindavefur.hi.is/article.php?id=24

Mynd 5.http://picasaweb.google.com/lh/photo/LB_fqqX43ZVfM58PZttftA

Mynd og texti stöð 8 http://fjola-ben.blogcentral.is/sida/2150752/

 

Takk fyrir

This entry was written by bjorgvino , posted on Föstudagur desember 02 2011at 11:12 f.h. , filed under Uncategorized . Bookmark the permalink . Post a comment below or leave a trackback: Trackback URL.

Færðu inn athugasemd

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>