jæja þá er blogg……

Hlekkur 6 Rafmagn

Fyrirlestratími á mánudaginn og við fengum glósur um Orku , rafmagn og segulmagn . Skrifuðum í hugtakarkortið og fjölluðum um nokkur hugtök t.d. eins og Spenna, Straumur, Viðnám og Lögmál Ohms.

Á fimmtudaginn vorum við í stöðvavinnu  sem ég ætla að skrifa um.

  1. Tölva phet-forrit
  2. Landsvirkjun – hugtakasafn.
  3. Orkan – 3. kafli verkefni í kaflalok.
  4. Verkefnablað – straumrásir
  5. Tilraun – rafmagn í sítrónu
  6. Tölva  hátæknivefur grunnskólans
  7. Tilraun – rafhleðslur
  8. Tilraun -rafsjá
  9. Verkefnablað Rafhleðsla og kraftur.
  10. Tölva – Carbfix verkefni- hvað er það?
  11. Orkan – mynd 3-14 bls. 61.  Teikna upp og útskýra.
  12. Tilraun – rafhlaða og áttaviti
  13. Hugtök – frekari útfærsla á hutakakorti þessa hlekks
  14. Verkefnablað – hliðtengt/raðtengd

Já ég var með Söndru Dögg í hóp.

Sú fyrsta sem við gerðuum var tilraun semmaður atti  að búa til rafsjá.

Áhöld : Glerflaska, gúmmítappi, tvær bráfaklemmur, álpappírsstrimill, blaðra, reglustika og járnull.

Framkvæmd : Við brutum álpappírinn saman og hegndum hann á annan endann á annari klemmunni. Síðan kræktum við klemmunum saman og hengdi þær í gegnum gat á tappanum en létum smá stubb af efri klemmunni standa upp úr. Tappann settum við svo í flöskuna þannig að klemmurnar héngu inn. Við blésum upp blöðruna og nudduðum henni varlega við járnullina. Síðan settum við blöðruna upp að bréfaklemmustubbnum þannig að hún væri alveg upp við hann en snerti hann samt ekki. Þá átti álpappírinn að hreyfast, en ekkert gerðist. Við prófuðum nokkrum sinnum aftur, og líka með raglustikunni en ekkert gerðist. Síðan löguðum við álpappírinn þannig að hann var ekki alveg fastur saman eins og við settum hann fyrst. Svo nudduðum vuð blöðrunni bara upp við hárið á okkur en ekki ullina og þá hreyfðist álpappírinn miklu meira, semsagt miklu betra að nota bara hárið á sér.

Á næstu stöð var blað þar sem við áttum að segja hvað gerist á milli tveggja öreinda þegar þær koma saman. Á blaðinu voru paraðar saman tvær og tvær tegundir af öreindum og áttum við að skrifa við hliðina á þeim hvaða kraftur verkar á milli þeirra, aðdráttarkraftur, fráhrindikraftur eða ekkert.

Svo var önnur stöð sem við áttum að reyna að búa til rafmagn úr appelsínu en timinn var að verða buinn svo við fengum allavega ekkert rafmagn úr appelsínunni.

Segjum þetta gott i bili.

This entry was written by bjorgvino , posted on Miðvikudagur febrúar 08 2012at 07:02 e.h. , filed under Uncategorized . Bookmark the permalink . Post a comment below or leave a trackback: Trackback URL.

Færðu inn athugasemd

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>