4 vika hlekkur 8 :) maí 7, 2012 at 11:32 f.h.

í vikunni var þetta helst:

Mánudagur: við fórum í könnun ú samskipti lífvera og við fengum að blogga en ég fór á selfoss og fékk ekki að blogga :)

Miðvikudagur: Við vorum að fara í könnunina sem við vorum í og svo hlustuðum við á fuglahljóð og við áttum að giska á hvaða fugl þetta var :)

Fimmtudagur: Við vorum að rannsaka fugla með kíki og fuglabók sem heitir Fugla vísirinn. Ég vann með Rúnari og Sesselju.  Við funndum mjög marga fugla og sumir þeirra voru sjaldgæfir á þessum slóðum. :)

hér er ógeðsleg frétt um REYKINGAR hjá unglingum.

Hér er önnur grein um SJÓN með örflögu.

kv Einar T.

hlekkur 8 vika 4 Líffræði apríl 30, 2012 at 8:36 e.h.

Í vikunni var þetta helst:

mánudagur: Við vorum ný búin í könnun svo við fengum blöðin eða einkunnirnar okkar.

miðvikudagur: Við vorum að vinna aðeins úti í þessum tíma og það sem við gerðum úti var að greina barrtré. Við áttum að vinna tvö og tvö saman og ég vann með Önnu Marý

fimmtudagur: Við vorum úti allann tímann(sem sagt 2×40 min). Við áttum að vinna 1 og 1 og við áttum að skrifa niður á lista um allt sem tengdist einhverju sem við völdum og ég tók BÖRK. Síðann var farið í minnis leiki. hann var þannig að Gyða var búin að finna tíu atriði og við áttum svo að leita að því sama. Svo fórum við í vinkvink í pottinn mjög skemmtilegur leikur og Stórfiskaleik.

Hér er góð frétt um aðra JÖRÐ

Kv Einar :)

 

 

vika 2 hlekkur 8 :) apríl 23, 2012 at 11:34 f.h.

í vikunni var þetta helst:

Mánudagur: Á mánudaginn var Gyða veik svo það var ekki tími hjá henni en við blogguðum þá fyrir síðustu viku

Miðvikudagur: Við vorum að klára plaköt sem við vorum búin að byrja á og svo fórum við í próf seinna í tímanum

Þetta eru spurningarnar úr prófinu sem ég tók: 1. Veldu 2 líffærakerfi sem vinna saman og útskýrðu hvernig þau vinna saman, og 3: gerðu píramíta úr þessum 5 stigum í lífveru.

Fimmtudagur: við vorum ekki í skólanum á fimmtudaginn vegna þess að þá var SUMARDAGURINN FYRSTI :)

hér er frétt um snjallsíma. hér er önnur frétt bara um nýrun

Kv Einar T

líffræði hlekkur 8 apríl 16, 2012 at 11:18 f.h.

í vikuuni var þetta helst :

mánudagur: Við vorum í páskafríi á mánudeginum :)

miðvikudagur: Það byrjað nýr hlekkur og við fengum glósur og hugtakakort frá Gyðu og við áttum að setja eins mikið og við kunnum inn á það.

fimmtudagur: Við vorum í plakara vinnu og ég er að vinna með Helga og Rúnari

hér er eitt Myndband um dýrafrumu

heimildir

hlekkur 7 vika 5 lokahnikkur mars 26, 2012 at 11:35 f.h.

Vatnsfellsvirkjun Rúnar Einar håkon 3 þetta er sýningin okkar

í vikunni var þetta helst:

mánudagur: á þessum degi vorum við í skálholti með bekknum í fermingarfræðslu

Miðvikudagur: við vorum að kynna virkjanirnar okkar sem við vorum búin að skrifa um

Fimmtudagur: við vorum að undir búa fyrir árshátíð og við misstum allveg einn tíma úr en í þessum tíma sem við vorum í vorum við í actionary(spurningaleik eða sem mmaður á að leika orð)

 Spurning dagsinns er: hver er fossinn??? sendu svarið með athugasemd

heimild myndar

þetta er foss

Kv Einar

Þjórsá Vika 3!!! mars 19, 2012 at 9:19 e.h.

Í vikunni var þetta helst:

Mánudagur: Við vorum að gera könnun um Þjórsá og við skoðuðum líka virkjanir úr henni

Miðvikudagur: Í þessum tíma vorum við skipt í hópa sem áttu að vinna verkefni um eina virkjun hver hópur. þetta átti að vinnast í Power Point og skila sem sagt í glærum.

Fimmtudagur: Við vorum að vinna í glærunum um virkjunum sem við fengum. Við áttum helst að klára verefnið en það gekk ekki allveg upp hjá mínum hópi sem eru Ég, Rúnar og Håkon

Hér er stövavinnan okkar Vatnsfellsvirkn með strákonum

Takk fyrir mig

Kv Einar

Þjórsá vika 2 !! mars 12, 2012 at 8:04 e.h.

í vikunni var þetta helst:

Mánudagur: Við vorum að horfa á mynd um Þjórsá og við áttum að skrifa það helsta niður á hugtakakortið okkar

Miðvikudagur: Við kláruðum að horfa á myndina um Þjórsárver og svo fengum við glærur eða glósur og við fórum yfir verkefni með henni Gyðu(bloggið hennar).

Fimmtudagur: Við vorum tví skipt eins og venjulega en við vorum í stöðvavinnu og ég vann með Rúnari

Við gátum gert 2 stöðvar eða 3 (stöðvavinnan okkar Rúnars)

Takk fyrir mig

Kv Einar

Þjórsá, vika 2 !!! mars 5, 2012 at 9:58 e.h.

í vikunni var þetta helst:

Mánudagur: Við vorum í tölvuveri að svara spurningum um Heklu og þjórsá. Við áttum að svara 3 spurningum og við máttum velja sjálf hvaða suprningar við tækjum.

Miðvikudagur: Í þessum tíma var Gyða bara að spjalla og við skoðuðum líka blogg frá þeim SEM blogguðu og fleirum nemendum.

Fimmtudagur: Við vorum bara einn tíman vegna þess að við fórum á Skólahreysti. En í tímanum gerðum við stutta krossa könnun og skoðuðum fréttir og síður.

Hérna er síðan hennar Gyðu

Hér er grein um svefn

Heimild af grein er MBL.IS

Kv Einar

blogg!! vika 4!! febrúar 27, 2012 at 8:18 e.h.

Í vikunni var þatta helst:

 mánudagur: við vorum í tölvuveri að meta bloggið okkar og við vorum að skoða síður og lesa fróðleik inná Vísindavefnum

Miðvikudagur:Við mættum öll í búningum í tíma hjá Gyðu þennan dag og í tímanum gerðum við para verkefni og við áttum að svara spurningum sem við fengum hjá Gyðu. Ég var svo heppinn að vinna með Ágústi Guðmanni.

Fimmtudagur: Við voru tví skippt eins og venjulega á fimmtudögum en við vorum að skoða farvegi í ám og svo vorum við líka að skoða Þjórsá eða kynntumst henni aðeins  :)

hér er grein um hesta :)

Þetta er Gljúfurleitarfoss

heimildir af mynd :) Heimildir grein er MBL.IS

Kv Einar T :)

Blogg!!! loka tíminn í hlekknum!!!! febrúar 14, 2012 at 4:09 e.h.

Í vikunni var þetta helst:

Mánudagur: Við fórum yfir það hvaða bylgjur fara lengst af þeim öllum og komumst að því að örbylgjur fara lengst

Miðvikudagur: Við vorum að skoða Glósur/Glærur sem við fengum frá kennara

Fimtudagur: Við vorum að klára að fara yfir Glósur/Glærur og fórum svo í próf úr þessum hlekk.

Kv E.T Svans