blogg vikunnar !! vika 2 bylgjur febrúar 7, 2012 at 2:58 e.h.

í vikunni var þetta helst:

Mánudagur: Við vorum að horfa á myndband þegar Tacoma Narrows brúin fauk og hér er smá fróðleikur um þennan atburð. við fengum líka glósur frá Gyðu(kennarinn okkar).

Miðvikudagur: Við horfðum á myndband um bylgjur. Við skoðuðum grein sem kom Kínverjum í mikla hættu. Við horfðum á annað myndband um ofurhuga að hoppa fram af byggingu.

Fimmtudagur: Við vorum að vinna í stöðvavinnu. Ég vann einn og fór einungis bara á eina stöð en hún var svoleiðis að það átti að fylla inná hugtakakortið okka úr bókinni  Orkan. í lok tímans var könnun úr þessum hlekk en á Fimmtudaginn eftir viku förum við í annað próf sem er svipað.

  • Tölva phet-forrit bylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag
  • Hugtakakort betrumbætt
  • Hátíðnihljóð – úthljóð – bergmálsmiðun.  Kíkjum á leðurblökur og söngur! eða vísindavefurinn  
  • Orkan – 4. kafli verkefni í kafla  Upprifjun og verkefni í kaflalok
  • Tölva phet forrit – bylgjur – skoða fyrst fyrsta flipann og fara svo í leikinn – búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4.
  • Tilraun – Myndvarpi og bylgjur – sjá verkefnablað.
  • Tilraun – Bylgjubrot – sjá verkefnablað.
  • Verkefni – teiknið upp formúluna fyrir bylgjulengd… sjá verkefnablað. Reikna nokkur dæmi.
  • Orkan bls.91.  Hvaða efni ber hljóðið hraðast?  Hvað hægast?
  • Tölva – kennistærðir bylgja frá MH
  • Orkan bls. 95.   Hvað eru dopplerhrif?  Teiknaðu upp skýringarmynd.
  • Dæmi:  20 sekúndum eftir að elding sést heyrist þruman.  Hver er fjarlægð að eldingunni ef lofthitastig er 20°C?  Fleiri dæmi í boði hjá kennara Laughing

Heimildir:  Blogg hjá Gyðu,

 

 

 

Ég kveð að sinni E.T Svansson

 

 

 

 

Leave a Reply