Vika 3 bylgjur og Stöðvavinna 2feb :D

Vika 3 bylgjur og Stöðvavinna 2feb :D

Hæhó :D

Á mánudaginn var fyrirlestra tími um hljóð Við lærðum um  : Hljóðstyrk, tónhæð, úthljóð, doppelerhrif, hermu, hljómblæ, samhliðun og bylgjuvíxl.

Svo á Miðvikudaginn var svona eiginlega spjall tími :) Við horfðum líka á nokkur myndbönd og fylltum inná hugtakakortið. Við skoðuðum eitt myndband sem var um brú sem brotnaði út af tíðni vindsins hér.

Fimmtudagurinn! Við fórum stöðvavinnu og ég var með Helga í hóp :D Þetta eru stöðvarnar sem við fengum að velja um :

  • Tölva phet-forrit bylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag
  • Hugtakakort betrumbætt
  • Hátíðnihljóð – úthljóð – bergmálsmiðun.  Kíkjum á leðurblökur og söngur! eða vísindavefurinn  
  • Orkan – 4. kafli verkefni í kafla  Upprifjun og verkefni í kaflalok
  • Tölva phet forrit – bylgjur – skoða fyrst fyrsta flipann og fara svo í leikinn – búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4.
  • Tilraun – Myndvarpi og bylgjur – sjá verkefnablað.
  • Tilraun – Bylgjubrot – sjá verkefnablað.
  • Verkefni – teiknið upp formúluna fyrir bylgjulengd… sjá verkefnablað. Reikna nokkur dæmi.
  • Orkan bls.91.  Hvaða efni ber hljóðið hraðast?  Hvað hægast?
  • Tölva – kennistærðir bylgja frá MH
  • Orkan bls. 95.   Hvað eru dopplerhrif?  Teiknaðu upp skýringarmynd.
  • Dæmi:  20 sekúndum eftir að elding sést heyrist þruman.  Hver er fjarlægð að eldingunni ef lofthitastig er 20°C?  Fleiri dæmi í boði hjá kennara Laughing 

Við unnum 4 stöðvar og það voru : Hugtakakort betrumbætt, Tölva phet-forritbylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag, Tölva phet forrit- bylgjur – skoða fyrst fyrsta flipann og fara svo í leikinn – búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4. Tilraun – Myndvarpi og bylgjur og það var mjög gaman að gera það vegna þess að ég var oft búin að sjá þetta á myndböndum en þarna fékk ég að gera þetta sjálf :) Svo fengum við að hlusta á leðurblöku lagið sem er hér.

  

Heimild : http://cimss.ssec.wisc.edu/satmet/modules/spectrum/wavelength.html

The door to Hell :S

Hver uppgötvaði rafmagnið?

 

Vika 1 bylgjur!

Vika 1 bylgjur!

Jæja nú er byrjaður nýr hlekkur sem heitir bylgjur :D Við byrjuðum á mánudeginum að fá nýtt hugtakakort og reyndum að muna sem mest og skirfuðum það á hugtakakortið :) Svo hina dagana var Gyða ekki :( Þannig að við horfðum á mynd á þriðjudeginum og vorum í 4földum tíma á fimmtudaginn með Ölmu Jenný :D

Geta rafmagns bylgjur eyðilagt ?

Myndband um bylgjur :)                                               

 

Heimlid: http://nat123.forlagid.is/nemar_files/svor/svor3kafli.htmBylgjur

Vísindavaka vika 2 :D

Vísindavaka vika 2 :D

Jæja nú er seinni vikan og allt er að vera búið :( En á mánudaginn vorum við að taka upp myndbandið og allt gekk eins og í sögu hér getið þið séð myndbandið :D Svo á miðvikudaginn vorum við að vinna og taka endasprettin á tilrauninni og fylla meira inn á hugtaka kortið og svona :D Svo á fimmtudaginn vorum við að sýna tilraunina okkar og við vorum í 4 földum tíma af því að Alma Jenný var veik! Við vorum að spila og vorum eiginlega í frjálsu þegar allir voru búnir að sýna tilraunina sýna :)

Hér ætla ég að benda ykkur frá nokkrum tilrauninum í bekknum :D

Kristín og Ninna :D

Elís , Helgi og Arnþór :)

Ég , Sesselja og Andrea :D

Einar og Rúnar :)  

En svo í næsu viku byrjum við í nýjum hlekk sem hetir Bylgjur  :)

Vísindavaka vika 1 !

Vísindavaka vika 1 !

Jæja nú erum við byrjuð aftur í skólanum og byrjuð á nýjum hlekk! það er vísindavaka!

Á mánudaginn var jólafrí!

En á Miðvikudaginn fengum við hugtakakortið okkar afþví við byrjuðum á nýjum hlekk sem heitir vísindavaka :) Svo vorum við að spjalla um það og svo var líka smá fyrir lestur :)

Á Fimmtudaginn var svo ákveðið hópana og ég var í hópi mep Andreu & Sesselju og við ákváðum að taka ELDGOS“!!!! Við græjuðum allt í kring um það og ákváðum að taka upp tilraunina og klippa í tölvu :) ) Svo á mánudaginn ætluðum við að framkvæma tilraunina !

Eldgos

Framkvæmd

Rifjaðu upp með nemendum það sem þeir hafa lært um eldgos. Í umræðum er gott að koma með eftirfarandi grunnupplýsingar:

Að miðja jarðar er kjarni úr heitum seigfljótandi vökva úr járni og nikkel.

Hiti frá kjarna jarðarinnar getur brotist upp á yfirborðið í gegnum sprungu í flekunum eða að hitinn getur “þrýsts út um” miðjuna á flekunum, og losað þrýsting og hita upp á yfirborðið.

Kynntu tilraunina fyrir nemendum en markmiðið með henni er að aðstoða nemendur í að sjá fyrir sér hvernig alvöru eldgos er.

Efni og áhöld

Leir, saltdeig eða mold
Lítil tóm gosplastflaska
Steikingarpanna
Rauður matarlitur
Mýkingarefni
Tvær msk. lyftiduft
Trekt
Edik

Fyrirmæli

Bekknum er skipt í hópa, og efnum og áhöldum dreift á hópana.

Nemendur eiga að setja
gosflöskuna á steikarpönnuna,
og móta leirinn í fjall í
kringum flöskuna. Passa
þarf að ekkert fari ofan í flöskustútinn.

Nemendur eiga að fylla flöskuna með heitu vatni
og blanda rauða matarlitnum við.

Næst eiga nemendur að
bæta 6 dropum af mýkingarefni og 2 msk
af lyftiduftinu og edikinu
í flöskuna.

Nú ættu nemendur að taka eftir rauðri froðublöndu rísa yfir topp eldfjallsins sem flýtur svo niður eftir hlíðunum.

Punktar
Útskýrið fyrir nemendum hvernig módelið þeirra líkist eldfjalli, eða skorið á þau að gera athugun til að koma fram með eigin útskýringar.
Einnig getur kennarinn haft sýnikennslu og gert tilraunina sjálfur.

 
Hér er tilraunin sem við ákváðum að taka :)
 

Vikan 5-8 Des.

Vikan 5-8 Des.

Á mánudaginn vorum við að horfa á þátt Power of the planet  Hér getiði séð meira um þættina.

Svo á miðvikudaginn var fyrirlestur um ósonlagið, lofthjúpin, skýin og segulljósin. Svo skoðuðum við nemendablogg og töluðum um fréttir og ein frétt var mjög skrítin (hér er hún) og hún var um það að það var fólk að rífast um hver ætti norður ljósin sem er mjög skrítið afþví að það á engin sérstakur þau.

Fimmtudagurinn; við unnum í plaggötum ég var með gróðurhúsaáhrifin ég var í hóp með Elísi, Rúnari Håkoni ég skrifaði allment um gróðurhúsaárhifin og teiknaði myndir. Hér er mynd af plaggatinu.

 

 

 

 

 

 

Þegar sólargeislar falla á lofthjúp jarðar endurkastast 26% þeirra strax aftur út í geiminn vegna frákasts frá skýjum og ýmsum ögnum í lofthjúpnum. Skýin og agnir í andrúmsloftinu gleypa svo í sig um 19% þeirra geisla sem berast frá sólu en afgangurinn, 55%, nær að yfirborði jarðar. Af þeim geislum er 4% varpað strax aftur út í geim. Hin 51% hafa margvísleg áhrif og valda meðal annars bráðnun jökla, uppgufun vatns og hitun yfirborðsins. Síðast en ekki síst nýtast þessir geislar til ljóstillífunar plantna.

 

 

 

 

 

 

Hvaða loftegundir vala gróðurhúsaáhrifum ?

Hér er myndband af youtube af gróðurhúsaáhrifum.

vika 14 :)

vika 14 :)

Mánudagur: Við fórum í tölvuverið og skoðuðum Stellarium stjörnuskoðunarforritið og svo skoðuðum við tunglið á stjörnuskoðum.is

Miðvikudagur: Fyrirlestrartími um jörð og tungl. 

Skoðum myrkva, kvartilaskipti og sjávarföll sérstaklega.

Fimmtudagur: Við unnum í plaggötum, ég var í hópi með Jóhönnu, Ninnu & Kristínu við tókum að okkur kvartilaskipti. Ég skrifaði og lýsti Vinsti Vaxandi þannig að þegar þú getur kýlt inn í tunglið með vinstri er það vaxandi.

Heimild : http://www.fa.is/deildir/Stjornufraedi/kvartilaskipti.html

Kvartilaskipti.

 

 

 

 

Afhverju eru 7dagar í vikunni en ekki 9-10 ?

Hópurinn minn.

Vika13 :)

Vika13 :)
Í þessari viku byrjuðum við á nýjum hlekk sem heitir jörðin. Á mánudaginn vorum við að gera verkefni um jarðskjálfta finna hvar stærstu skjálftarnir voru búnir að vera vikuna. Á miðvikudaginn fengum við vinnumöppurnar okkar og skýrslu og skrifuðum helling á hugtakakortið okkar. Á fimmtudaginn vorum við í 4földum sameinuðum tíma Náttúrufræði og samfélagsfræði og vorum í hópavinnu í plaggötum ég var með Rúnari, Jóhönnu & Håkoni. Við vorum með bergtegundir og við völdum okkur mikilvægustu bergtegundir ég skrifaði um setberg :D

Vika12:)

Vika12:)

Nú ég önnin búin seinasta bloggið á önninni ! Gjörið svo vel. ;)

Á mánudaginn vorum við í tölvuverinu og unnum í skýrslu sem við gerðum saman.

Á miðvikudaginn vorum við með upprifjun fyrir próf og kláruðum hugtakakortið okkar.

Svo á fimmtudag var PRÓF! í efnafræði og þegar við vorum búin með prófið fórum við í efna alias og skiluðum skýrslunni.

Heimild af mynd : http://www.kohlerpublicschools.org/vnews/display.v/SEC/High%20School%7CTeacher%20Websites%3E%3EKrejcarek,%20Dana

 

 

 

 

 

 

 

Hvað eru jónir ?

Hér er skýrslan mín, Önnu M, og Ágústar G.

Vika 11 :D

Vika 11 :D

Á mánudaginn vorum við að vinna í efnafræði verkefnum og á meðan að við vorum að vinna kom Gyða með ritgergerðiran okkar og sagði okkur hvað við hefðum geta gert betur og fleira.

Á miðvikudaginn fórum við svo yfir verkefnin og töluðum um STÓRU tilraunina sem var á fimmtudaginn og töluðum um skýrslugerð og fleira.

Á FIMMTUDAGINN var svo tilraun eyming sígarettu ég var með Önnu Marý og Ágústi í hóp.

 

Heimild af mynd : ‘i okkar eign.

Vika 10 ;)

Vika 10 ;)

Á mánudaginn byrjuðum við að fara upp í náttúrufræði stofu og rifja upp róteindir, nifteindir og rafeindir og fórum svo í verkefni frá FÁ sem er hér. Og þegar við vorum búin með það fórum við í annað verkefni.

Á miðvikudaginn horfðum við á myndband um lotukerfið og svöruðum spurningum um leið.

Á fimmtudaginn vorum við að vinna verkefni um evrópu en Gyða var ekki þannig að það voru aðrir kennarar með okkur.

 

Hvernig finnur maður nifteindir.             Skrítin tilraaun.                 Heimild af mynd : http://nemendur.fludaskoli.is/dadigeir/2009/09/17/hallo/