Monthly Archives: janúar 2012

Vika 1 bylgjur!

Vika 1 bylgjur!

Jæja nú er byrjaður nýr hlekkur sem heitir bylgjur :D Við byrjuðum á mánudeginum að fá nýtt hugtakakort og reyndum að muna sem mest og skirfuðum það á hugtakakortið :) Svo hina dagana var Gyða ekki :( Þannig að við horfðum á mynd á þriðjudeginum og vorum í 4földum tíma á fimmtudaginn með Ölmu Jenný :D

Geta rafmagns bylgjur eyðilagt ?

Myndband um bylgjur :)                                               

 

Heimlid: http://nat123.forlagid.is/nemar_files/svor/svor3kafli.htmBylgjur

Vísindavaka vika 2 :D

Vísindavaka vika 2 :D

Jæja nú er seinni vikan og allt er að vera búið :( En á mánudaginn vorum við að taka upp myndbandið og allt gekk eins og í sögu hér getið þið séð myndbandið :D Svo á miðvikudaginn vorum við að vinna og taka endasprettin á tilrauninni og fylla meira inn á hugtaka kortið og svona :D Svo á fimmtudaginn vorum við að sýna tilraunina okkar og við vorum í 4 földum tíma af því að Alma Jenný var veik! Við vorum að spila og vorum eiginlega í frjálsu þegar allir voru búnir að sýna tilraunina sýna :)

Hér ætla ég að benda ykkur frá nokkrum tilrauninum í bekknum :D

Kristín og Ninna :D

Elís , Helgi og Arnþór :)

Ég , Sesselja og Andrea :D

Einar og Rúnar :)  

En svo í næsu viku byrjum við í nýjum hlekk sem hetir Bylgjur  :)

Vísindavaka vika 1 !

Vísindavaka vika 1 !

Jæja nú erum við byrjuð aftur í skólanum og byrjuð á nýjum hlekk! það er vísindavaka!

Á mánudaginn var jólafrí!

En á Miðvikudaginn fengum við hugtakakortið okkar afþví við byrjuðum á nýjum hlekk sem heitir vísindavaka :) Svo vorum við að spjalla um það og svo var líka smá fyrir lestur :)

Á Fimmtudaginn var svo ákveðið hópana og ég var í hópi mep Andreu & Sesselju og við ákváðum að taka ELDGOS“!!!! Við græjuðum allt í kring um það og ákváðum að taka upp tilraunina og klippa í tölvu :) ) Svo á mánudaginn ætluðum við að framkvæma tilraunina !

Eldgos

Framkvæmd

Rifjaðu upp með nemendum það sem þeir hafa lært um eldgos. Í umræðum er gott að koma með eftirfarandi grunnupplýsingar:

Að miðja jarðar er kjarni úr heitum seigfljótandi vökva úr járni og nikkel.

Hiti frá kjarna jarðarinnar getur brotist upp á yfirborðið í gegnum sprungu í flekunum eða að hitinn getur “þrýsts út um” miðjuna á flekunum, og losað þrýsting og hita upp á yfirborðið.

Kynntu tilraunina fyrir nemendum en markmiðið með henni er að aðstoða nemendur í að sjá fyrir sér hvernig alvöru eldgos er.

Efni og áhöld

Leir, saltdeig eða mold
Lítil tóm gosplastflaska
Steikingarpanna
Rauður matarlitur
Mýkingarefni
Tvær msk. lyftiduft
Trekt
Edik

Fyrirmæli

Bekknum er skipt í hópa, og efnum og áhöldum dreift á hópana.

Nemendur eiga að setja
gosflöskuna á steikarpönnuna,
og móta leirinn í fjall í
kringum flöskuna. Passa
þarf að ekkert fari ofan í flöskustútinn.

Nemendur eiga að fylla flöskuna með heitu vatni
og blanda rauða matarlitnum við.

Næst eiga nemendur að
bæta 6 dropum af mýkingarefni og 2 msk
af lyftiduftinu og edikinu
í flöskuna.

Nú ættu nemendur að taka eftir rauðri froðublöndu rísa yfir topp eldfjallsins sem flýtur svo niður eftir hlíðunum.

Punktar
Útskýrið fyrir nemendum hvernig módelið þeirra líkist eldfjalli, eða skorið á þau að gera athugun til að koma fram með eigin útskýringar.
Einnig getur kennarinn haft sýnikennslu og gert tilraunina sjálfur.

 
Hér er tilraunin sem við ákváðum að taka :)