Hæhó
Á mánudaginn var fyrirlestra tími um hljóð Við lærðum um : Hljóðstyrk, tónhæð, úthljóð, doppelerhrif, hermu, hljómblæ, samhliðun og bylgjuvíxl.
Svo á Miðvikudaginn var svona eiginlega spjall tími
Við horfðum líka á nokkur myndbönd og fylltum inná hugtakakortið. Við skoðuðum eitt myndband sem var um brú sem brotnaði út af tíðni vindsins hér.
Fimmtudagurinn! Við fórum stöðvavinnu og ég var með Helga í hóp
Þetta eru stöðvarnar sem við fengum að velja um :
- Tölva phet-forrit bylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag
- Hugtakakort betrumbætt
- Hátíðnihljóð – úthljóð – bergmálsmiðun. Kíkjum á leðurblökur og söngur! eða vísindavefurinn
- Orkan – 4. kafli verkefni í kafla Upprifjun og verkefni í kaflalok
- Tölva phet forrit – bylgjur – skoða fyrst fyrsta flipann og fara svo í leikinn – búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4.
- Tilraun – Myndvarpi og bylgjur – sjá verkefnablað.
- Tilraun – Bylgjubrot – sjá verkefnablað.
- Verkefni – teiknið upp formúluna fyrir bylgjulengd… sjá verkefnablað. Reikna nokkur dæmi.
- Orkan bls.91. Hvaða efni ber hljóðið hraðast? Hvað hægast?
- Tölva – kennistærðir bylgja frá MH
- Orkan bls. 95. Hvað eru dopplerhrif? Teiknaðu upp skýringarmynd.
- Dæmi: 20 sekúndum eftir að elding sést heyrist þruman. Hver er fjarlægð að eldingunni ef lofthitastig er 20°C? Fleiri dæmi í boði hjá kennara
Við unnum 4 stöðvar og það voru : Hugtakakort betrumbætt, Tölva phet-forritbylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag, Tölva phet forrit- bylgjur – skoða fyrst fyrsta flipann og fara svo í leikinn – búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4. Tilraun – Myndvarpi og bylgjur og það var mjög gaman að gera það vegna þess að ég var oft búin að sjá þetta á myndböndum en þarna fékk ég að gera þetta sjálf
Svo fengum við að hlusta á leðurblöku lagið sem er hér.
Heimild : http://cimss.ssec.wisc.edu/satmet/modules/spectrum/wavelength.html
