ekki var gert mikið í síðustu viku, afþví að danirnir voru í heimsókn. en þeir voru farnir á fimtudaginn en alla vega á fimtudaginn vorum við að gera allskonar tilraunir um þurrís það var mjög gaman og eigum við að blogga rosalega flott um þurrís í staðin fyrir skýrslu svo ég ætla víst að gera það
)
ég og Kjartan vorum saman í hóp. á fyrstu stöðinni byrjuðum við á því að setja þurrís í skál og suðum svo vatn. þegar vatnið var tilbúið vorum við búin að setja sápu vatn í glas og tusku ofaní það. við settum heitt vatn í þurrísin og þá kom fullt af gufu sem kallast víst kolvísýringur og tókum svo tuskuna og dróum hægt yfir skálina. við vorum að reyna að setja sápu yfir skálina og gera eina stóra sápukúlu. það virkaði ekki alltaf en það tók sinn tíma og á endanum vorum við að ná þessu. á næstu stöð settum við þurrís i tilraunarglös og í einu var kalt vatn og hinu var heitt svo vourm við að sjá munin hvor er fljótar að eyða ísnum. þegar við vorum búin að gera það í smá tíma settum við blöðru ofaná og sáum hvor var fljótari að setja loft í blöðruna. á næstu stöð vorum við að reyna að frysta sápu kúlur það tók langan tíma en á endanum frystist hún aðeins það var allavega hægt að brjóta hana.
þetta var það sem við vorum að gera í tímanum sem var mjög gaman. þurrís er mjög kaldur ís sem má alsekki koma við því maður getur fengið kul sem er sama og að brenna sig nema bara það er kalt. munurinn á þurrís og klaka er að þurrís er frosin koldvísýringur en klaki frosið vatn. þurrís breytist í gas við -79.5°C
heimildir: Mynd

Leave a Reply