Gunnhildur Guðmundsdóttir

á mánudaginn var ég ekki í skólanum en það var fyrirlestrar tími bara um hrunamannahrepp og jarðsögu. á fimmtudaginn var verið að fara yfir glósur og undirbúa okkur fyrir könnun sem verður á fimtudaginn næsta. á föstudaginn vorum við í svona vefrallý og við vorum að svara fullt af spurningum um t.d surtsey . og allt sem við gerðum er komið í verkefna bók á blogginu okkar.

verkefnið sem við vorum að gera er hér: jarðfræði 09.12.11

Grunvatn á íslandi

Ferskvatn er ein af auðlindum landsins sem gnótt er af þótt þeim gæðum sé misskipt milli landshluta. Best og tryggast er ferskvatn sem unnið er úr jörðu, en eiginleikar jarðlaganna ráða bæði magni og gæðum grunnvatns. Grunnvatn er tiltölulega efnasnautt á Íslandi og laust við mengun. Styðja má rökum að ferskvatnið sé full efnasnautt til manneldis, en auðveldara er að efnabæta þegar þess er þörf heldur en að nema óæskileg efni brott. Mengun þarf að varast. Umferð hefur aukist um viðkvæm vatnatökusvæði sem fram að því höfðu verið utan alfaraleiðar. Víða vantar jarðvegsþekju á berggrunninn sem gæti hlíft grunnvatni fyrir mengun af almennri umferð. Taka ferskvatns til almenningsnota og einkanota hefur aukist. Jafnframt verða kröfur um hreinleika vatnsins sífellt strangari og gildir það jafnt um almenningsnot og matvælaiðnað. http://www.vedur.is/vatnafar/grunnvatnsrannsoknir/

Hvernig myndaðist Surtsey

Surtsey myndaðist í neðansjávargosi í nóvember 1963, þar sem fyrir var um 130 m sjávardýpi. Framan af, meðan sjór komst í gíginn, tókust á vatn og glóandi hraunbráð með miklum sprengingum sem mynduðu gosösku og gjall. Eldingar voru tíðar í þessum þætti gossins. Gígurinn var nefndur Surtur en eyjan Surtsey. Um mánaðamótin janúar-febrúar 1964 hætti gosið í Surti en hófst tveimur dögum síðar á nýjum gíg norðvestan við hinn upprunalega, og nefndust þeir síðan Surtur I og II. Þá hafði eyjan orðið hæst 174 m yfir sjávarmál. Þegar gígurinn lokaðist loks fyrir ágangi sjávar 4. apríl 1964 breyttist sprengigosið í hraunstrókavirkni og flæðigos, og hraundyngja hlóðst upp kringum Surt II fram til 17. maí 1965. http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=51770

 

Heimildir á myndum : Surtsey Eyjafjallajökull

hérna er síða með flottum myndum úr eyjafjallajökli http://www.boston.com/bigpicture/2010/04/more_from_eyjafjallajokull.html

Leave a Reply