Á mánudaginn minnir mig að við vorum að skrifa inná hugtakakortið. Á miðvikudaginn var ég ekki þannig ég get ekki sagt um það þau voru samt held ég að gera einhverja skýrslu. Á föstudaginn fórum við í próf.
Mismunandi form orku:
- Hreyfiorka
- Stöðuorka
- Varmaorka
- Efnaorka
- Rafsegulorka
- Kjarnorka
Hiti er mælikvarði á meðalhreyfiorku. Hitamælir mælir hita annaðhvort í: Gráðum á celsíus °C Vatn frýs við 0°C og sýður við 100°C . Vatn frýs við 273 Kelvin.
Lögmál um varðveislu orkunnar:
- Hvorki er hægt að skapa orku,
- né eyða henni,
- aðeins breyta mynd hennar
- Heildarorkan tiltæk hverju sinni breytist aldrei.
Varmaleiðing : Varmi flyst gegnum efni, eða frá einu efni til annars, með beinni snertingu milli sameinda. Orkan berst frá einni sameind til annarrar. efnið getur verið fast efni, vökvi eða lofttegund. Sum efni leiða varma betur og hraðar en önnur.
Hitaþennsla: hiti hefur áhrif á stærð hluta.
því heitara, meiri hreyfing sameinda, lengra á milli sameinda, efnið þenst út. tvímálmur notaður til að stjórna hita – hitastillar.