Á mánudaginn vorum við í skýrsluvinnu. Við vorum að gera skýrslu um krufninguna á músinni og gerðum eina skýrslu á hóp. Við kláruðum næstum því en náðum ekki alveg að klára og prenta.
Á miðvikudaginn var stöðvavinna og ég var með Eyrúnu í hóp. Við gerðum nokkrar stöðvar. Á 1. stöðinni vorum við að læra á svona vigt eða vog eða hvað sem þetta kallast. Við mældum nokkra steina og mældum þá svo aftur til að sjá hvort við fengum alltaf sömu töluna- að sjálfsögðu náðum við að fá alltaf sama í öllu og vorum mjööög nákvæmar.
Svo áttum við að nota formúlur til að reykna fullt af dæmum og einhvað sniðugt. Á síðustu stöðinni ætluðum við að finna eðlismassa steins en tíminn var búinn.
Á föstudaginn lét Gyða okkur fá glærupakka um eðlisfræði. (jeii) Við þurftum líka að gera nokkur verkefni. í einu verkefninu áttum við að lesa texta og finna út í hvaða „yrðingu“ niðurstöðurnar, tilgátan og allt það kom fram. Við gerðum annað svona verkefni sem var mjög líkt þessu. Svo gerðum við eitt verkefni þar sem við áttum að reikna þyngdina okkar á nokkrum mismunandi plánetum með því að margfalda massann okkar með ákveðinni tölu. Við fengum formúlublað frá Gyðu með fullt af sniðugum formúlum sem við fórum yfir og skrifuðum á hvaða mælieiningar við notum til að mæla hvaða hlut. Á þessu rosa sniðuga blaði var líka sínt hvernig nokkrar mælieiningar eru skammstafaðar/styttar.
Ákvað að setja inn nokkrar svona mælieiningar sem voru á þessu blaði.
- Amper A
- Celsíusgráða °C
- Gramm g
- Kaloría Kal
- Kelvin K
- Klukkustund klst.
- Lítri l
- metri m
- Mínúta mín