Á mánudaginn héldum við áfram með einhvað verkefni síðan í síðustu viku og fengum ritgerðina okkar til baka.
Á miðvikudaginn vorum við að gera tilraun með massa, kraft og afl. Ég var með Gullu og Hrafnhildi í hóp og við vorum með stigann hjá náttúrufræðistofunni. Hrafnhildur hljóp og labbaði, Gulla tók tímann og ég skrifaði. Við mældum stigann og hann var 2,7m hár. Þegar við vorum búin að labba og hlaupa 3 sinnum upp stigann og skrá niðurstöðurnar var komið að því að reikna og finna meðaltal, massa, kraft og afl. Við notuðum formúlur sem Gyða skrifaði uppá töflu til að finna þetta út.
Til að finna kraftinn gerðum við massa x hröðun. Massinn er bara þyngd manneskjunnar sem hljóp (44 kg) en hröðunin er bara togkraftur jarðar. (9,8 N)
Kraftur: 44 kg x 9,8 N/kg= 431,2 N
Þegar við vorum búin að finna kraftinn þurftum við að finna vinnuna. Til að finna vinnu gerir maður kraftur x vegalegnd. Krafturinn var 431,2 N og hæð stiganns 2,7m þannig að þetta er 431,2N x 2,7m= 1164,24Nm
Næst þurftum við að finna aflið sem er fundið með formúlunni vinna deilt með tíma.
Vinnan var 1164,24Nm þannig að það þarf bara að deila því með sekúndunum. Meðaltalið í göngunni var 7,81 sek en hlaupinu 3,8 sek.
Aflið í göngunni var bara 1164,24Nm deilt með 7,81 sek. sem er 149,1 W.
Aflið í hlaupinu var 1164,24Nm deilt með 3,8 sek. sem er 306,38 W.
Í þessari tilraun komumst við að því að það þarf næstum helmingi meiri kraft/afl til þess að geta hlaupið upp stiga en að labba. Kraftar sem höfðu áhrif eru: núningskraftur, togkraftur jarðar og loftmótstaða.
Hér er smá útskýring á kraft, hröðun, vinnu og afli sem við fundum í bókinni kraftur og hreyfing.
Kraftur- áhrif sem verka á hlut þannig að hann tekur að hreyfast, hættir að hreyfast eða breytir hraða sínum. Kraftur er mældur í N og formúlan er: massi x hröðun.
Hröðun er 9,8 (þyngdarkraftur jarðar.)
Vinna- orkubreyting sem verður þegar hlutur færist úr stað fyrir tilstilli krafts; margfeldi af krafti og vegalengd. Vinna er mæld í Nm og formúlan er kraftur x vegalegnd.
Afl- mælikvarði á hversu hratt vinna er unnin; vinna deilt með tíma.
Myndina af stiganum fékk ég hér.
Á föstudaginn hélt Gyða áfram með glærupakkann sem hún byrjaði á einhvern tímann fyrir löngu og við gerðum einhver dæmi sem voru í glærunum og hlustuðum á hana.
