Við erum byrjuð í stjörnufræði og eigum að gera glæru kynningu og sýna bekknum. Ég valdi jörðina og þarf að gera ca. 8-10 glærur eða eihv þannig um hana. Á mánudaginn vorum við í tölvuveri að vinna í glærukynningunni. Á miðvikudaginn vorum við í syövavinnu og ég var með Gylfa í hóp. Við kláruðum 4 stöðvar og byjuðum á einni. Við byjuðum á stöð VI og við vorum að skoða grein í lifandi vísindi um sólina.
Smá bútur úr lifandi vísindi-tekinn beint upp: Nýjar rannsóknir benda til þess að sólin sé alls ekki jafn stöðug og taliði hefur verið. Fjöldi sólgosa hefur verið niðri í öldudal og kannksi munu þau hvera alveg um tíma. Þetta er vísbending um óþekkt ferli í iðrum sólar sem kunna að hafa mikil áhrif á loftslag jarðar. -Lifandi vísindi 2011 nr. 1
Síðan fórum við á stöð XII sem var mjög svipuð og fysta stöðin nema við vorum bara að skoða myndir og texta af tunglinu en ekki sólinni.
Geimfarið LRO var sent á braut um tunglið 2009. Frá því hafa m.a. borist mjög nákvæmar myndir af yfirborðinu. -Lifandi vísindi 2011 nr 10.
Þriðja stöðin okkar var tölvustöðin. við áttum að fara inná Planet10 og búa til plánetu. Fyrstu 2 pláneturnar okkar voru of heitar þannig að það lifði ekket á þeim en þriðja plánetan var fín og var mjög stöðug.
Á næstu stöð áttum við að fikkta með galeo sjónauka og reyna að finna út hvernig hann virkar. Við náðum ekki að sjá neitt með honum en það þurfti örugglega bara að stilla hann eitthvað.
Stöð X spurningar bls 51 í sól, tungl og stjörnur. Ég er ekki með þessa bók þannig að ég man ekki alveg spurningarnar en ég ætla að setja svörin við fyrstu tvem. (náðum ekki að klára)
- Með því að skoða litróf stjarnanna má fá upplýsingar um hreyfingu þeirra.
- Rauðvik- Ef stjarna er á leið burt frá okkur eykst bylgjulengd ljóssins og það færist í áttina að rauðu í litrófinnu.
- Blávik- Ef stjarnan er að koma til okkar styttist bylgjulengdin og litirnir hliðrast að bláu.
Myndir: Mynd1, mynd2 Myndirnar tengjast lifandi vísindi ekki neitt heldur langaði mig bara að setja einhverjar myndir inn