Vika 3 hlekkur 8

Á mánudaginn vorum við í tölvuveri að blogga ;)

Á miðvikudagin fórum út að greina barrtré.

Á fimmtudagin fórum við út í skóg og gerðum ýmis verkefni td. minnisleikin þar sem við fengum nokkrar sekúndur til að sjá 10 hluti og svo áttum við að finna þessa hluti í skóginum. Svo fengum við langt blað fundum okkur hlut og áttum að skrifa eins mikið og gátum um hlutinn. Og svo sýndi Gyða okkur fléttur og skófir

Þetta eru fléttur

Frétt um Lífvænlega plánetu

heimild mynd:http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=3702

-Helgi

Vika 2 hlekkur 8

Ég var ekki á mánudaginn og frí á fimmtudaginn.

Á miðvikudaginn kláruðum við eh plaggöt og svo var stutt könnun um líffræði. Mér gekk ekki vel í prófinu :( Hún skrifaði 4 spurningar uppá töflu og svo áttum við að velja 2

Hér eru flottar fréttir um líffræði

Kjöt át lykilatriði í þróun mansinsFékk heilablóðfall og varð hommi

-Helgi

Hlekkur 7 vika 4!!!!!!!!

Á mánudaginn var stutt könnun um þjórsárver og svo var glærukynning. Svo var valið í hópa til að búa til glærusýningu um viirkjanir í Þjórsárverum. Ég var með Arnþóri og Ágústi.Við vorum með Sigölduvirkjun

Á miðvikudaginn vorum við að vinna í því og svo kláruðum við á fimmtudaginn. Þið finnið þetta á verkefnabankanum til vinstri á síðunni.

Hér er fræðandi slóð um þjórsárver.

- Helgi

Hlekkur 7 vika 2

Á mánudaginn vorum við í tölvum að vinna verkefni um Heklu, Þjórsá og Hvítá :

Hversu oft hefur Hekla gosið frá landnámi… og hversu oft gaus hún á 20. öldinni.
Berið saman Þjórsá og Hvítá. Hvað er líkt, hvað ólíkt og rökstyðjið.
Fossarnir í Þjórsá?
Heklugos – gossagan sem þekkt er. Stærstu gosin …. yngstu gosin …. ???? Lýsið einu gosi sérstaklega.
Segið frá byggð í Þjórsárdal og áhrif Heklugosa á byggðina.
Lýsið því hvernig eldfjall Hekla er?
Hvaða hjátrú er tengd Heklu?

Á miðvikudaginn var spjalltími og við skoðuðum myndir af afrétti Gnúpverja td. Hjartarfell:

og skoðuðum nokkur blogg td hjá Einari

Á fimmtudaginn var stutt könnun ,stjörnuskoðun og svo smá spjall og svo fórum við á SKÓLAHREISTI!!!!!

Fróðleikur um þjórsá úr glósum:

Þjórsá er lengsta á landsinns, þ.e. 230 km. frá upptökum Bergvatnsvíslar.
Meginstefna er til suðvestura og fylgir þannig aðalsprungusvæði landsinns.
Er að drjúgum hluta jökulá en þó er bergvatn uppistaðan í vatni árinnar.
Meðfram ánni er gróið land þegar neðar dregur og víða stórbrotið og fagurt landslag.
Að lokum liðast Þjórsá um stærsta og þéttbýlasta landbúnaðarhérað á Íslandi.

Kv.Helgi

Þjórsá!!!

Á mánudaginn vorum við í tölvuverinu að skoða síður

Á miðvikudaginn vorum við að vinna lesskilningsverkefni um orku

Á fimmtudaginn var stuttur fyrirlestur og við fengum glósur og skoðuðum fréttir

Kv.Helgi

 

Bylgjur!!!

Á mánudagin fengum við glósur og lærðum td. um

  • hljóðstyrk
  • tónhæð
  • dopplerhrif
  • úthljóð
  • hermu
  • hljómblæ
  • samliðun
  • bylgjuvíxl

Og horfðum á myndband þegar Tacoma Narrow brúinn rústaðist í miklum vind.

Á miðvikudaginn var umræðutími

Við horfðum á myndband um rúben tube, skoðuðum fréttir,spjölluðum og bættum inná hugtakakortið

Á fimtudaginn var stöðvavinna og próf í seinni tímanum

STÖÐVAVINNA!!!

Ég var í hóp með Erlu og gerðum við 5 stöðvar:

    1. Tölva phet-forrit bylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag
    2. Hugtakakort betrumbætt
    3. Hátíðnihljóð – úthljóð – bergmálsmiðun.  Kíkjum á leðurblökur og söngur! eða vísindavefurinn  
    4. Orkan – 4. kafli verkefni í kafla  Upprifjun og verkefni í kaflalok
    5. Tölva phet forrit – bylgjur – skoða fyrst fyrsta flipann og fara svo í leikinn – búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4.
    6. Tilraun – Myndvarpi og bylgjur – sjá verkefnablað.
    7. Tilraun – Bylgjubrot – sjá verkefnablað.
    8. Verkefni – teiknið upp formúluna fyrir bylgjulengd… sjá verkefnablað. Reikna nokkur dæmi.
    9. Orkan bls.91.  Hvaða efni ber hljóðið hraðast?  Hvað hægast?
    10. Tölva – kennistærðir bylgja frá MH
    11. Orkan bls. 95.   Hvað eru dopplerhrif?  Teiknaðu upp skýringarmynd.
    12. Dæmi:  20 sekúndum eftir að elding sést heyrist þruman.  Hver er fjarlægð að eldingunni ef lofthitastig er 20°C?  Fleiri dæmi í boði hjá kennara

 Og við gerðum númer1,2,5,6 og 10

Í stöð 1 vorum við að leika okkur í þessu og prufa smá að fikta

Í stöð 2 var ég bara að bæta á hugtakakortið fyrir prófið

Í stöð 5 skoðuðum við eins og Gyða kennari sagði okkur að gera svo fórum við í leikinn og náðum í erviðleikastig 7

Í stöð 6 áttum við bara að leika okkur að því að búa til og brjóta bylgjurnar

Í stöð 10 var bara að fikta og hafa gaman

 

Heimildir:http://natturufraedi.fludaskoli.is/index.php?option=com_content&view=category&layout=blog&id=46&Itemid=59

KV.HELGI

Nýr hlekkur……..Bylgjur

Á mánudaginn byrjaði nýr hlekkur sem er um bylgjur.

En svo var kennarin veikur það sem eftir var af vikunni. :(

flott frétt um sólgos

kv.Helgi

Vísindavakan!!!!!!!!

Á mánudaginn vorum við að frammkvæma tilraunina. Okkar tilraun (hjá mér Elísi og Arnþóri) tókst vel.

Á miðvikudaginn vorum við að klippa myndbandið og setja það inn á youtube

Á fimtudaginn var svo kynning. Hér eru myndbönd frá bekknum:

Ninna og Kristín

Erla,Sesselía og Andrea

Einar og Rúnar

Heimildir: youtube

kv.Helgi

Myndband af tilraun

Hér er myndband af tilrauninni hjá mér, Elísi og Arnþóri

Kv.Helgi

Nýtt ár………..nýr hlekkur!!!!!

Á miðvikudaginn byrjuðum við á nýjum hlekk sem heitir vísindavaka. Og við völdum okkur í hópa ég var með Arnþóri og Elísi og völdum líka tilraun og við gerðu tilraun með mjólk,matarlit og sápu.

Á fimmtudaginn vorum við að undirbúa tilraunina.

Á mánudaginn gerðum við tiraunina. Og gekk það ekki vel í fyrsta skipti en í annað skiptið gekk það vel

KV.Helgi