Á mánudagin fengum við glósur og lærðum td. um

  • hljóðstyrk
  • tónhæð
  • dopplerhrif
  • úthljóð
  • hermu
  • hljómblæ
  • samliðun
  • bylgjuvíxl

Og horfðum á myndband þegar Tacoma Narrow brúinn rústaðist í miklum vind.

Á miðvikudaginn var umræðutími

Við horfðum á myndband um rúben tube, skoðuðum fréttir,spjölluðum og bættum inná hugtakakortið

Á fimtudaginn var stöðvavinna og próf í seinni tímanum

STÖÐVAVINNA!!!

Ég var í hóp með Erlu og gerðum við 5 stöðvar:

    1. Tölva phet-forrit bylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag
    2. Hugtakakort betrumbætt
    3. Hátíðnihljóð – úthljóð – bergmálsmiðun.  Kíkjum á leðurblökur og söngur! eða vísindavefurinn  
    4. Orkan – 4. kafli verkefni í kafla  Upprifjun og verkefni í kaflalok
    5. Tölva phet forrit – bylgjur – skoða fyrst fyrsta flipann og fara svo í leikinn – búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4.
    6. Tilraun – Myndvarpi og bylgjur – sjá verkefnablað.
    7. Tilraun – Bylgjubrot – sjá verkefnablað.
    8. Verkefni – teiknið upp formúluna fyrir bylgjulengd… sjá verkefnablað. Reikna nokkur dæmi.
    9. Orkan bls.91.  Hvaða efni ber hljóðið hraðast?  Hvað hægast?
    10. Tölva – kennistærðir bylgja frá MH
    11. Orkan bls. 95.   Hvað eru dopplerhrif?  Teiknaðu upp skýringarmynd.
    12. Dæmi:  20 sekúndum eftir að elding sést heyrist þruman.  Hver er fjarlægð að eldingunni ef lofthitastig er 20°C?  Fleiri dæmi í boði hjá kennara

 Og við gerðum númer1,2,5,6 og 10

Í stöð 1 vorum við að leika okkur í þessu og prufa smá að fikta

Í stöð 2 var ég bara að bæta á hugtakakortið fyrir prófið

Í stöð 5 skoðuðum við eins og Gyða kennari sagði okkur að gera svo fórum við í leikinn og náðum í erviðleikastig 7

Í stöð 6 áttum við bara að leika okkur að því að búa til og brjóta bylgjurnar

Í stöð 10 var bara að fikta og hafa gaman

 

Heimildir:http://natturufraedi.fludaskoli.is/index.php?option=com_content&view=category&layout=blog&id=46&Itemid=59

KV.HELGI