Enter a short paragraph of text or Adsense code, or disable the intro text entirely, in the theme options panel.

janúar, 2012

Föstudagur, janúar 27th, 2012

27.01.12

Enginn tími þessa vikuna nema núna á föstudaginn. Við vorum í tölvuveri og í leik sem heitir Energy Skate Park. Þessi leikur er um hjólabrettagæja og það eru endalausir valmöguleikar um þyngdarafl og þyngd hjólabrettagæjans og misnunandi tegundir af orku sem maður getur notað. Það er t.d. hægt að skipta um hjólabrettafólk sem er með mismunandi þyngd en svo er líka hægt að ákveða þyngdina sjálfur. Svo er hægt að hafa línurit og valið um mælistikur til að mæla. Þú getur látið koma slóð eftir þeim sem eru á hjólabrettinu og allsoknar kökurit eða súlurit af orkunni sem er verið að nota. Orkan hverfur aldrei heldur breytist bara í aðra. Svo geturu valið staðsetningu t.d eins og á tuglinu og þá er þyngdarkrafturinn sá sami og er á tuglinu. Það er hægt að velja Geimurinn sem er enginn þyngdarkraftur, Tuglið sem er aðeins meiri, Jörðin sem er venjulegur og júpíter sem er með mesta þyngdarkraftinn. Þú getur búið til allskonar brautir og látið mannin t.d. farið í hring. ég gat það þegar hann var í kringum 100 kílóin og á tunglinu. svo er líka hægt að setja brautina í lykkju og þá er auðveldara að fara í hring með smá tilhlaupi. Grundvallaratriðið er það er orkan hverfur ekki heldur breytist bara í aðra.

hér er hreyfimynd af leiknum sem við vorum í. Á hliðinni sjást allir möguleikarnir sem hægt er að nota.
myndin var tekin héðan. 

Mánudagur, janúar 23rd, 2012

16.01.12 – 20.01.12

Jæja á mánudaginn vorum við að kynna vísindavöku verkefnið okkar. allt gekk bara svona líka vel ! svo var ekki tími á fimmtudaginn því Gyða var veik. Á föstudaginn vorum við í tölvuveri og Gyða var ennþá veik en hún lét okkur fá verkefni sem við unnum og settum svo í verkefnabankann. Mitt er komið inná :)

Verkefnið var um Raforku og Hreina orku og við fundum öll svör og útskýringar á vef Orkuveitu Reykjarvíkur : http://fraedsla.or.is/  

Hef voða lífið meira að segja úr þessari viku :)

Mynd tekin hér 

 

„Heimili landsins nota raforku til að knýja hin ýmsu tæki en einnig til lýsingar innan- og utanhúss. Um 8% húsa nota raforku til hitunar og þar fer 70-90% raforkunnar í hitun.
Almenn heimilisnotkun á landinu, að undanskilinni rafhitun, var um 490 þúsund MWh eða um 4,4MWh á meðalheimili á ári. Engin alvörurannsókn hefur farið fram um hvernig raforka er notuð hér á landi en rannsóknir erlendis sýna að orkunotkun á meðalheimili megi skipta niður á eftirfarandi hátt:“

Raforkunotkun heimila

Sniðug mynd af raforkunotkun á meðalheimili á ári

Texti og mynd tekin af vef Orkusetursins

 

 

Föstudagur, janúar 13th, 2012

09.01.12 – 13.01.12

Jæjaaaa, á mánudaginn vorum við að vinna í tilrauninni okkar. gekk alveg vel en vorum bara svo lengi að byrja. Fimtudaginn vorum við líka að vinna í tilrauninni , og við kláruðum hana. Svo á föstudaginn áttum við að kynna hana en það var ekki skóli svo við kynnum hana örugglega bara á mánudaginn. En já rilraunin okkar er gerð úr mjólk og sápu og vísnidaspurningin var Hefur fitumagn áhrif á hreyfingu vökva þegar hann kemst í snertingu við uppþvottalög ? 

Hér er myndbandið okkar : http://www.youtube.com/watch?v=JqqSM0FDegY&feature=youtu.be 

Einföldustu niðurstöðurnar eru þær að sápan blandast ekki við mjókurvörurnar heldur flýtur á toppnum og dreyfist um yfirborðið. Um leið og hún er að dreyfast grípur hún með sér matarlitinn. Sameindirnar í sápunni eru að ráðast á fituna í mjólkurvörunum, sem myndar hringlaga hreyfingu í litunum. Þar sem litirnir blandast sameinast þeir og mynda nýja liti.

 

Þetta er ekki mynd frá okkur en þetta er sama tilraunin :)

 

 

 

 

Sunnudagur, janúar 8th, 2012

05.01.12

skólinn byrjaður aftur , fjöööör !

var bara tími á fimtudaginn því það var ekki skóli á föstudaginn vegna veðurs ! jibbbbbý

allaveganna nýr hlekkur byrjaður og það er vísindavaka . ég er með Ragnhildi, Sóley og Söndru Dögg í hóp og við erum með geðveika tilraun , haha , svona sem krakkar gera í 1.bekk ((:

eeeeeeen rosa skemmtileg og myndbandið af henni kemur hingað inná þegar við erum búnar. 

allaveganna á fimmtudaginn vorum við bara að undirbúa og ákveða tilraunina (;

verður ekki lengra blogg .. im out !

  • Dagatal :)
    janúar 2012
    Þ Mi Fi L S
    « des.   feb. »
     1
    2345678
    9101112131415
    16171819202122
    23242526272829
    3031  

Powered by WordPress

Blossom Theme by RoseCityGardens.com