Sjónaukinn
á föstudagin horfðum við á mynd og við fengum blað með sem að var með texta og spurningum hérna kemur aðeins um það sem að við lærðum úr því. Við lærðum meðal annars um sjónauka, sjónaukinn er mikilvægasta tæki stjarnvíindanna. með honum höfum við gert ótrúlegar uppgvötanir sem hafa gjörbreytt heimsmynd okkar. Galileó tókst með heimasmíðuðum sjónauka sem stækkaði um það bil 20-falt að gerbreyta heimsmynd okkar með nokkrum merkustu uppgvötum mannkynnssögunnar. þótt hann hafi ekki fundið upp sjónaukann var það hann sem gerði sjónaukann heimsfrægan.
Galileo Galilei var ítalskur stærðfræðingur, stjörnufræðingur og eðlisfræðingur. Hann var upphafsmaður þess að samhæfa kenningu og tilraunir í eðlisfræði. Hann leiddi út lögmálið um jafna hröðun fallandi hlutar og sannreyndi það með tilraunum. Einnig leiddi hann út fleygbogaferil hlutar á flugi í þyngdarsviði. Hann endurbætti sjónaukann og gerði fyrstur manna merkar og framúrskarandi athuganir með sjónauka á stjarnfræðilegum fyrirbærum. Seinna á ævi hans olli stuðningur hans við kenningar Kópernikusar um það að reikistjörnurnar gengju umhverfis sólina árekstri við kirkjuna og sat hann í stofufangelsi vegna þessara kenninga sinna.
sjónaukinn er eins og trekt. Safnlinsa eða spegill safnar ljósi frá fjarlægum stjörnum og beinir því að auganu.því stærri sem spegillinn er ,þeim mun daufari fyrirbæri er unnt að sjá. stórir sjónaukar hafa líka meiri greinigæði. með stórri linsu eða spegli getur þú séð hárfín smáatriði á yfirborði reikistjörnu. stærðin skiptir því stjörnufræðinga öllu máli og hafa þeir alltaf leitast eftir að smíða stærri sjónauka.
annað er fengið upp úr blaðinu


No comments yet.