Á mánudaginn 2. febrúar – Við byrjuðum að horfa á stutt myndbönd sem Gyða sýndi okkur. Ég lærði eitthvað nýtt af þessum stuttu myndböndum en líka vissi ég alveg eitthvað sem var sagt í þeim því Gyða er búin að vera með svo góða fyrirlestra um þetta allt. Eftir að við horfðum á myndböndin þá var smá umræða um þau til dæmis hvað er raðtengd og hliðtengd straumrás? Við lærðum líka um mismunandi gerðir viðnáma. Síðan breyttum við aðeins til í restina á tímanum og vorum bara að svara spurningum upp úr bók. Bókin sem við notuðum heitir Eðlisfræði 1 og hún er mjög ný og flott bók. Við svöruðum spurningum sem tendugst sem við erum búin að vera læra síðustu viku og þetta var Sjálfspróf úr 1,2 á bls 19. Það var alveg ágætt að breyta aðeins til og síðna fórum við yfir svörin í enda tímans og var alltaf smá umræða um hvert svar og það er mjög þæginlegt því þá tekur maður vel eftir.
Á miðvikudaginn 4. febrúar (tvöfladur tími) – Byrjuðum aftur að horfa á horfa á stutt fræðslumyndbönd. Síðan fengum við að fikta okkur með rafmagn. Við prófuðum allt sjálf og sumt virkaði en annað ekki. Þetta var mjög skemmtilegur og rólegur tími.
Á fimmtudaginn 5. febrúar – Var stutt könnun í byrjun tímans. Við fengum að hafa öll gögn með okkur en samt var könnunin alveg smá erfið en samt sanngjörn. Síðan restina af tímanum skoðuðum við blogg og fréttir.
Fréttir!
Smábatterí geta valdið mikilla hættu
11% spendýra dáið út á 200 árum
Heimildir:
mbl.is
Myndir frá mér
Comments