hlekkur 6 vika 2

Á mánudaginn fengum við glósur og fórum yfir þær. Gerðum verkefni úr 4. kafla orkunnar. lærðum m.a. um hljóðstyrk, tónhæð, úthljóð, hermu, hljómblæ, dopplerhrif, samliðun og bylgjuvíxl og fórum yfir þessar  fréttir: hermu, TAcoma Narrows brúin 1940 og myndbandið af brúnni.

Á miðvikudaginn var umræðutími og horfðum á myndböndin rubins tube og sandur og tíðni. Skoðuðm fréttirnar gerfitungl á tæpasta og ofurhugar og svo í lokinn bættum við inná hugtakakortið.

Á fimmtudaginn fórum við i stöðvavinnu með 12 stöðvum og svo í seinni tímanum fórum við í stutta könnun. Ég gerði stöðvarnar sem eru appelsínugula. :D

  1. Tölva phet-forrit bylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag
  2. Hugtakakort betrumbætt
  3. Hátíðnihljóð – úthljóð – bergmálsmiðun.  Kíkjum á leðurblökur og söngur! eða vísindavefurinn   
  4. Orkan – 4. kafli verkefni í kafla  Upprifjun og verkefni í kaflalok
  5. Tölva phet forrit - bylgjur – skoða fyrst fyrsta flipann og fara svo í leikinn – búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4.
  6. Tilraun – Myndvarpi og bylgjur – sjá verkefnablað.
  7. Tilraun – Bylgjubrot – sjá verkefnablað.
  8. Verkefni – teiknið upp formúluna fyrir bylgjulengd… sjá verkefnablað. Reikna nokkur dæmi.
  9. Orkan bls.91.  Hvaða efni ber hljóðið hraðast?  Hvað hægast?
  10. Tölva - kennistærðir bylgja frá MH
  11. Orkan bls. 95.   Hvað eru dopplerhrif?  Teiknaðu upp skýringarmynd.
  12. Dæmi:  20 sekúndum eftir að elding sést heyrist þruman.  Hver er fjarlægð að eldingunni ef lofthitastig er 20°C?  Fleiri dæmi í boði hjá kennara Laughing

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Posted in Uncategorized | Leave a comment

hlekkur 5 vika 2

Á mánudaginn vorum við að undirbúa tilraunina okkar og klára plaggatið þ.a.e.s. þeir sem voru með plaggöt.

Á miðvikudaginn prófuðum við tilraunina okkar og tókum myndir af henni.

Á fimmtudaginn kynntum við tilraunina okkar sýndum hvernig hún virkaði og hvernig við settum upp tilraunina okkar.

Posted in Uncategorized | Leave a comment

Hlekkur 5 vika 1 :)

Á mánudaginn var skólinn ekki byrjaður. :)

Á miðvikudaginn byrjaði VÍSINDAVAKAN en við tókum því rólega fyrsta daginn. Við skoðuðum glærur en fórum svo að finna okkur hópfélaga og skipta úr hópum A og B. Ég og Anna Marý erum saman með tilraun. Hún var í hópi A en skipti yfir í B hópinn sem ég er í. :)

Á fimmtudaginn leituðum við að tilraun til að vinna við. Ég og Anna Marý fundum tilraun sem heitir VATNSFLAUG og fórum svo að undirbúa verkefnið. Við fórum út í smíðastofu og bjuggum til flöskustand. Þegar við komum aftur út í skóla var tíminn næstum búinn svo að við gengum frá öllu. :)

Posted in Uncategorized | Leave a comment

12.12.2011

Á mánudaginn horfðum við á þátt um lofthjúpinn úr þáttaröðinni Power of the planet með Dr Iain Stewart frá BBC. Hér er hægt að skoða þættina betur :)

Á miðvikudaginn fengum afhentar glósur um lofthjúpinn, ósonlagið, skýin og segulljósin. Svo fórum við yfir þær og ræddum um þær í tímanum. Við skoðuðum fréttir um ný uppgötvaða plánetu sem heitir Kepler og er í 600 ljósára fjarlægð. Einnig var rætt um norðurljosin og hver ætti þau. :)

Á fimmtudaginn vorum við í Stjörnusal í Félagsheimilinu. Við bjuggum til veggspjöld og  fengum að ráða hvað af eftirtöldu var sett á þau.

Lagskipting lofthjúps

Gróðurhúsaáhrif

Loftslag og vindar

gróðurbelti

ósonlagið

ský

 segulhvolf og segulljós

 

Posted in Uncategorized | Leave a comment

25/11 ’11

Á mánudaginn vorum við í tölvuverinu og kíktum á ýmsar slóðir sem tengjast innri öflum jarðar. Við gerðum stutta grein um jarðskjálfta og sendum hana svo Gyðu. Við kíktum á nokkrar slóðir um jarðskjálfta út um allan heim, íslensk og erlend stórgos og jarðskjálfta á Íslandi.

Á miðvikudaginn fengum við vinnubækur 1. annar og skýrslu síðasta hlekks. Við ræddum um hvað við ætluðum að gera í 4. hlekk. Við gerðum svo hugtakakort og fórum í upprifjun á innri gerð jarðar, flekaskilum, pangeae, heitum reitum og ytri öflum jarðar.

Á fimmtudaginn vorum við í Stjörnusal (sem er í Félagsheimilinu) og unnum hópverkefni í fjóra tíma. Hóparnir fengu að velja hvaða verkefni þeir gerðu og þið getið séð möguleikana hérna fyrir neðan. Minn hópur valdi að skrifa um bergtegundir jarðskorpunnar. :)

                        

 Innri öfl    

Ytri öfl

Innri gerð jarðar

Flekar – flekamót/flekaskil

Jarðsagan – tímabil jarðsögunnar

Bergtegundir jarðskorpunnar

Möndulhalli og árstíðir

Posted in Uncategorized | Leave a comment

20/11 ’11

Á mánudaginn vorum við í tölvuverinu að læra að skrifa skýrslu.

Á miðvikudaginn vorum við að rifja upp  fyrir próf fyrir fimmtudaginn.

Á fimmtudaginn fórum við í efnafræðipróf úr 3. hlekk. Eftir prófið gerðum við sjálfsmat á blogginu. Við skiluðum vinnubókinni frá 1. önn. við skiluðum skýrslunni sem við gerðum á mánudaginn og kláruðum heima. svo fórum við að meta hvernig ritgerðirnar eru hjá Gyðu. Svo þegar þessu var öllu lokið fórum við í EFNA-ALÍAS það var skipt í tvö lið og þetta var mjög jöfn keppni en ég vil ekki gefa út hverjir unnu :/

Posted in Uncategorized | Leave a comment

16/11 ’11

Á mánudaginn vorum við í Hánjúk, við skoðuðum blogg og fréttirnar maður sem breytir brúnum augum í blá og nýjum jökli. Við unnum efnafræðiverkefni, og við fengum ritgerðina okkar, meðaleinkuninn var 8 :)

Á miðvikudaginn við fórum yfir verkefnin sem voru unnin á mánudaginn. Við töluðum um tilraun morgundagsins, skýrslugerð og lok annarlokar.

Á fimmtudaginn vorum við að eyma sígarettu og þið getið séð mynd af uppsetningunni sem við gerðum til að geta eymt sígarettuna.

eiming

 

Posted in Uncategorized | Leave a comment

05/11 ’11

Á mánudaginn vorum við í tölvuverinu og gerðum smá verkefni og lærðum  um frumeindir, atóm, öreindir, róteindir, nifteindir og rafeindir. Við skrifuðum  hleðslu öreindanna; + 0 – og massatölu og sætistölu.

Á miðvikudaginn var Gyða ekki en við horfðum á  heimildarmynd og svöruðum spurningum og Ann var með okkur.

Á fimmtudaginn var Gyða  ekki heldur en við bjuggum  til plaggöt um lönd og sögðum  allt um löndin sem við fengum úthlutuð  (það tengdist líka samfelagsfræði). Ég fékk  Grikkland og  ég var  með Selmu og Einari í hóp :)

Posted in Uncategorized | Leave a comment

31/10 ’11

Á mánudaginn vorum við að vinna verkefnahefti um lotukerfið sem við fengum á fimmtudaginn í seinasta tíma. Svo vorum við að klára ritgerðina sem PDF skjal á blogginu okkar. Hérna kemur lotukerfið inná wikipedia.

Á miðvikkudaginn var fyrirlestratími um lotukerfið. Við fórum yfir heftið sem við gerðum á mánudaginn, kíktum á blogg hjá nemendum og kíktum á fréttir.

Á fimmtudaginn fórum við í stöðvavinnu í efnafræði og það voru fimm stöðvar.

Hér fyrir neðan getið þið séð stöðvavinnuna.

  1. Rafeindahvolf, fjöldi rafeinda, róteinda og nifteinda.  Vinnublað.
  2. Frumeindalíkön og formúlur.
  3. Efnafræði kertaloga
  4. Loft og vatn.  Er hægt að þrýsta saman lofti og/eða vatni?
  5. Spegill og móða.  Hvað er að gerast?  Skrifa upp efnajöfnu.
Posted in Uncategorized | Leave a comment

21/10 ’11

Á mánudaginn var foreldraviðtal þannig að það var ekki skóli.

Á miðvikudaginn  vorum við að byrja í nýjum hlekk sem heitir efnafræði. Við fengum prófin okkar og  fengum hugtakakort.

Á fimmtudaginn var farið í það að rifja upp efni og Gyða sýndi okkur myndband af svona efnum. Hér getið þið seð mynbandið :)

Posted in Uncategorized | Leave a comment