jan., 2012

Á mánudaginn vorum við að undirbúa tilraunina okkar og klára plaggatið þ.a.e.s. þeir sem voru með plaggöt.

Á miðvikudaginn prófuðum við tilraunina okkar og tókum myndir af henni.

Á fimmtudaginn kynntum við tilraunina okkar sýndum hvernig hún virkaði og hvernig við settum upp tilraunina okkar.

Á mánudaginn var skólinn ekki byrjaður. :)

Á miðvikudaginn byrjaði VÍSINDAVAKAN en við tókum því rólega fyrsta daginn. Við skoðuðum glærur en fórum svo að finna okkur hópfélaga og skipta úr hópum A og B. Ég og Anna Marý erum saman með tilraun. Hún var í hópi A en skipti yfir í B hópinn sem ég er í. :)

Á fimmtudaginn leituðum við að tilraun til að vinna við. Ég og Anna Marý fundum tilraun sem heitir VATNSFLAUG og fórum svo að undirbúa verkefnið. Við fórum út í smíðastofu og bjuggum til flöskustand. Þegar við komum aftur út í skóla var tíminn næstum búinn svo að við gengum frá öllu. :)