Á mánudaginn fengum við glósur og fórum yfir þær. Gerðum verkefni úr 4. kafla orkunnar. lærðum m.a. um hljóðstyrk, tónhæð, úthljóð, hermu, hljómblæ, dopplerhrif, samliðun og bylgjuvíxl og fórum yfir þessar fréttir: hermu, TAcoma Narrows brúin 1940 og myndbandið af brúnni.
Á miðvikudaginn var umræðutími og horfðum á myndböndin rubins tube og sandur og tíðni. Skoðuðm fréttirnar gerfitungl á tæpasta og ofurhugar og svo í lokinn bættum við inná hugtakakortið.
Á fimmtudaginn fórum við i stöðvavinnu með 12 stöðvum og svo í seinni tímanum fórum við í stutta könnun. Ég gerði stöðvarnar sem eru appelsínugula.
- Tölva phet-forrit bylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag
- Hugtakakort betrumbætt
- Hátíðnihljóð – úthljóð – bergmálsmiðun. Kíkjum á leðurblökur og söngur! eða vísindavefurinn
- Orkan – 4. kafli verkefni í kafla Upprifjun og verkefni í kaflalok
- Tölva phet forrit - bylgjur – skoða fyrst fyrsta flipann og fara svo í leikinn – búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4.
- Tilraun – Myndvarpi og bylgjur – sjá verkefnablað.
- Tilraun – Bylgjubrot – sjá verkefnablað.
- Verkefni – teiknið upp formúluna fyrir bylgjulengd… sjá verkefnablað. Reikna nokkur dæmi.
- Orkan bls.91. Hvaða efni ber hljóðið hraðast? Hvað hægast?
- Tölva - kennistærðir bylgja frá MH
- Orkan bls. 95. Hvað eru dopplerhrif? Teiknaðu upp skýringarmynd.
- Dæmi: 20 sekúndum eftir að elding sést heyrist þruman. Hver er fjarlægð að eldingunni ef lofthitastig er 20°C? Fleiri dæmi í boði hjá kennara
