desember 12th, 2011
Stöðvavinna 1.des. Ég var með ástu í hóp!
Hérna eru stöðvarnar sem voru í boði J
Hvað eru eðaæsteinar?
Eðalsteinar eða gimsteinar eru skrautsteinar sem hafa næga hörku til þess að rispast ekki við daglega notkun. Skrautsteinar eru náttúrulegar steindir eða bergtegundir sem notaðar eru í skrautmuni.
Harka steinda er gefin upp samkvæmt svonefndum Mohs-kvarða sem nær frá einum og upp í tíu. Mjúkar steindir, til dæmis talk eða talkúm (e. talc, soapstone), hafa hörkuna 1 og harðasta steindin, demantur, hefur hörku 10.
Af algengum steindum í umhverfi okkar er kvars hörðust með hörku 7. Kvars er til dæmis oft meginuppistaðan í ljósum sandi erlendis. Steindir með hörku 8-10 eru harðari en kvars og því litlar líkur á að þær rispist við notkun.
Demantur!
http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4098
Er silfurberg merkasta framlag Íslands til mannkynssögunnar?
Silfurberg hefur gegnt fjölbreyttu og oft ómissandi hlutverki í merkum vísindauppgötvunum, sem sumar hverjar urðu tilefni Nóbelsverðlauna. Þær flýttu fyrir framþróun ýmissa sviða raunvísinda á 19. öld og fram eftir þeirri 20., til dæmis í rafsegulfræði, lífrænni efnafræði, kristalla- og steindafræði, og svonefndri nútímaeðlisfræði sem byggir meðal annars á kenningum Einsteins.
http://visindavefur.hi.is/article.php?id=24
Samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 44/1999 eru einungis dropsteinar friðlýstir enn sem komið er. Á heimasíðu Náttúruverndar ríkisins www.natturuvernd.is er að finna auglýsingu um friðlýsingu dropsteina frá 1974 og tekur friðlýsingin til dropsteina í öllum hellum á Íslandi. Í auglýsingunni segir meðal annars að „til dropsteinsmyndana teljast bæði dropsteinsdrönglar, sem hanga niður úr hellisþökum og niður með hellisveggjum, svo og dropsteinskerti, sem standa á hellisgólfum og syllum hellisveggja. Bannað er að brjóta eða skemma á annan hátt umræddar dropsteinsmyndanir. Um viðurlög vegna brota á reglum þessum fer eftir ákvæðum náttúruverndarlaga.“
Sérstakar reglur geta gilt á friðlýstum svæðum en almenna reglan er sú að óheimilt sé að raska jarðmyndunum í friðlöndum. Sem dæmi má nefna silfurbergsnámuna að Helgustöðum í Suður-Múlasýslu sem er einn frægasti fundarstaður silfurbergs á Íslandi. Náman var friðlýst sem náttúruvætti árið 1975. Í auglýsingu þar að lútandi segir að hvergi megi raska bergmyndunum og stranglega bannað sé að hrófla við silfurbergi og flytja það af svæðinu.
Annars staðar en á friðlýstum svæðum þarf leyfi landeigenda til að taka grjót. Ef til stendur að flytja grjótið úr landi ber að tilkynna það til Náttúrufræðistofnunar Íslands.
http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=2472
Á föstudaginn 2.des máttum við ráða hvort við horfðum á mynd eða blogga og ég valdi það að horfa á myndina. Á mánudeginum 5.des var fyrirlestrar tími hjá Gyðu. Þetta var í boði fimmtudaginn 8.des:
Verkefni og umræður.
Undirbúningur fyrir könnun í næstu viku.
Nemendaspurningar og nemendablogg.
Fræðslumynd og einstaklingsverkefni.
Á föstudaginn 9.des vorum við í tölvuverinu að gera verkefni sem Gyða var búin að gera, þú getur ýtt HÉR ef þú vilt skoða það.
Og núna 12.des erum við öll í tölvuverinu og megum blogga og svo í seinni tímanum kemur Elsa og verður með fyrirlestur.
-karen