Kjartan Helgason

|

Þetta er bloggsíðan MÍN!

Archive for janúar, 2012

Tölvutími

Föstudagur, janúar 27th, 2012

Í dag (föstudag) vorum við í tölvuveri og fórum í leik sem heitir energy skatepark. Slóð inná leikinn :  http://phet.colorado.edu/en/simulation/energy-skate-park

Leikurinn er svosem ekki sem verstur, en hann snýst um að búa til skatepark fyrir kall í mismunandi aðstæðum, td. á tunglinu og á Júpíter. Maður getur skoðað töflu um orku, þ.a.s. hvaða orka er að verkum á hverjum tíma og maður sér td. greinilega að orka hverfur aldrei, hún breytir bara um mynd.

Heimild myndar: http://www.bing.com/images/search?q=energy+skate+park&view=detail&id=4B94C9C14486756C14999CD19F480CBBD2488DEB&first=0&FORM=IDFRIR

Tölvutími!!!

Föstudagur, janúar 20th, 2012

Í dag vorum við í tölvutíma og svöruðum spurningum um rafmagn. Ég set það inná verkefnabankann.

Vísindavaka

Þriðjudagur, janúar 17th, 2012

Nú er vísindavakan búin og við erum búnir að kynna myndbandið sem er hér að neðan. Við erum bara búnir að vera að vinna í vísindavökuni í síðustu viku. Ég hef svosem ekki mikið að segja, en það má sjá meira um vísindavökuna í þarsíðustu færslu.

Myndband

Fimmtudagur, janúar 12th, 2012

Jæja, þá er vísindavöku-myndbandið tilbúið. Hér er linkur inná það (ég set linkinn líka í verkefnabankann) http://www.youtube.com/watch?v=hN4znwxhqKk

Sjá meira um vísindavökuna í síðustu færslu.

Vísindavaka!!!

Miðvikudagur, janúar 11th, 2012

Nú erum við í hlekk sem heitir vísindavaka. Þá gerum við tilraunir og skrifum skýrslu, gerum plagat eða tökum myndband. Það er mjög gaman. Ég, Haukur og Eyþór erum að gera reyksprengju. Við erum búnir að gera hana þrisvar og hún hefur altaf virkað sæmilega. Við eigum bara eftir að kaupa lífrænt litarefni í duftformi til að fá lit í reyksprengjuna. Ransóknarspurningin okkar er nefninlega svona: Er nauðsynlegt að hafa litarefni í reyksprengju, verður hún mikið betri með litarefni? Við ætlum að gera myndband um þetta.

Uppskriptin er einföld:

40 gr sykur

60gr. saltpétur

1msk. matarsóti

Leiðbeiningar:

Blanda sykri og saltpétri saman í pott og bræða á lágum hita. Þegar það er bráðið þá á að setja matarsóta útí. Muna að hræra allan tímann. Svo setur maður blönduna í td. klósettrúllu og teipar fyrir.

Hér eru myndbönd af samskonar reyksprengjum(en þær eru flestar með litarefnum)

http://www.youtube.com/watch?v=zgc_Y_wK66Q&feature=g-vrec&context=G2885ea8RVAAAAAAAABw

http://www.youtube.com/watch?v=Qj05BZZVZgE