desember 12th, 2011
Í síðustu viku vorum við til dæmis að svara spurningum í tölvuveri. Ég setti svör við þeim inná verkefnabanka hér á bloggsíðunni. Við höfum verið að læra um Guðmund Kjartansson, en gaman er að geta þess að hann er bróðir langafa míns. Hann gaf til dæmis út fyrsta jarðfræðikort Íslands og setti fram allskonar kenningar. Hér er slóð á pdf skjal um hann. http://www.raunvis.hi.is/~leo/GudmKjartRit.pdf.
Á laugardaginn var svo tunglmyrkvi. Þar sem ég var í Reykjavík sá ég ekki neitt, en ég sá aftur á móti mjög skíran og fínan tunglmyrkva í sumar eða fyrrasumar, ég man það ekki alveg. Hér er svo mynd af tunglmyrkva:
Heimild: http://agbjarn.blog.is/users/fa/agbjarn/img/tunglmyrkvi.jpg
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »
desember 2nd, 2011
Í gær (fimmtudag) vorum við í stöðvavinnu. Það sem við erum í jarðfræði skoðuðum við steina. Það voru fullt af mismunandi steinum sem við skoðuðum. Meðal annars skoðuðum við hrafntinnu, baggalút og ópal. Ég hef svosem oft séð hrafntinnu og finnst hún frekar töff. Ég hef heyrt að það sé hægt að mynda neista með því að slá tveimur hrafntinnum saman. Ég hef aldrei getað það, en ef maður nuddar þeim saman í svolitla stund þá finnur maður brunalykt. Ég hafði aldrei séð baggalút áður og ég er ekki viss með ópalinn. Baggalútur er mjög cool steinn sem lítur út eins og spörð (rolluskítur).
Hér er mynd af baggalút.

Heimild myndar: http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=10421
Líparít er steintegund sem Kerlingafjöllin eru búin til úr. Hrafntinna, baggalútur og biksteinn eru steintegundir sem allar eru myndaðar úr líparíti. Það er einmitt mjög mikið af hrafntinnu í Kerlingafjöllum.
Í stöðvavinnuni sáum við líka brennistein. Þegar við þefuðum af honum funndum við súra brennisteins lykt. Hún settist allveg í kokið á manni.
Myndin er af brennisteini.

Heimild myndar: http://utahscience.oremjr.alpine.k12.ut.us/Sciber08/8th/geology/images/sulfur.jpg
Svo sáum við kristalla og fullt af stölum steinum og lásum um mánaðasteina. Þú getur lesið betur um þá hérna: http://fjola-ben.blogcentral.is/sida/2150752/ . Það mætti líkja þessu við stjörnuspá.
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »
nóvember 24th, 2011
Á mánudaginn síðastliðinn byrjuðum við á nýjum hlekk. Jarðfræði.
Áðan fórum við svo í stöðvavinnu. Ég las um jarðskorpufleka í bókinni „Jörðin“. Talið er að einu sinni hafi allar heimsálfur verið eitt stórt meginland, og það hafi svo færst í sundur. Stóra meginlandið var kallað Pangea.
Myndin er af Pangeu. Heimild
Steingerfðar risaeðlureru til dæmis mjög góðar vísbendingar um Pangeu, því sumar tegundir hafa fundist begja vegna við Atlantshafið. Lemúrarnir á Madagaskar einangruðust til dæmis sem tegund þegar eyjan klofnaði frá Afríku seint á krítartímabilinu.
Ég skoðaði líka bókina Heaven & Earth. Það er mjög sniðug bók sem sýnir hluti í stærðarröð, minsta til þess stærsta. Minnsti hluturinn var fyseind. Vísindamenn voru einmitt að koma því á framfæri að þær gætu ferðast hraðar en ljósið. Sjá hér. Stærsti hluturinn var mynd tekin ú Hubble sjónaukanum. Hubble er sjónauki sem er það langt fá jörðinni að lofthjúpur jarðar truflar hann ekki. Honum er beint á sama punktinn í mjög langann tíma því stjörnur og stjörnuþokur í svo mikilli fjarlægð gefa frjá sér svo dauft ljós að hann þarf að safna ljósi í langann tíma.
Þessi mynd er tekin úr Hubble sjónaukanum. Heimild
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »
nóvember 17th, 2011
Síðasti fimmtudagstími var sá allra besti fimmtudagstími sem ég hef nokkurtíman farið í! Við gerðum tilraunir með þurís! Það voru nokkrar stöðvar með mismunandi tilraunum. Ég var með Gunnhildi í hóp. Við byrjuðum á stöð þar sem við áttum að setja þurís og sjóðandi vatn í skál og setja klút með sápu í yfir kanntana. Hér er allaveganna myndband sem lýsir þessu nánar. http://www.youtube.com/watch?v=76CNkxizQuc
Myndina klippti ég úr myndbandinu að ofan.
Við prófuðum líka að þrýsta mismunandi málmi í þurrísinn. Það var svipað og í þessu myndbandi: http://www.youtube.com/watch?v=90cRyd4LpJo&feature=related
Á einni stöðinni gerðum við nákvæmlega þessa tilraun, en maður þurfti að halda vel við blöðruna því annars skaust hún af: http://www.youtube.com/watch?v=mmaxqYcNsaw
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »
október 19th, 2011
Í síðustu viku héldum við áfram í erfðafræðinni. Við fórum nánar út í blóðflokka. Við fengum verkefni sem lýsti sér þannig að foreldrar voru ekki vissir um hver ætti hvaða barn. Þeir tóku því blóðprufu úr sér og börnunum og athuguðu hver væri í hvaða blóðflokki. Við notuðum reitatöflu og fundum á endanum út hver ætti hvaða barn.

Á myndinni sést að annað foreldrið er í blóðflikki AB og hitt í O (OO). Barnið þeirra getur s.s. aðeins verið í blóðflokki A og B. (AO og BO eru svipgerðir af A og B blóðflokki).
Myndina teiknaði ég sjálfur.
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »
október 11th, 2011
Þar sem ég missti af fimmtud. og föstudagstíma í náttúrufræði blogga ég um lax núna. Ég ætla að skrifa um lax í ritgerðinni minni.
Á fimmtudaginn fengum við frí eftir hádegi. Ég nýtti mér það með því að fara út að veiða. Fljótlega setti ég í eitt stikki lax, en þar sem ég misti svo marga í fyrra áhvað ég að taka þessu bara rólega. Ég var u.þ.b. þrjú korter að landa kvikindinu. Ég fór aftur að veiða daginn eftir þar sem ég var í fríi, en varð ekki var.

http://www.wild-wonders.com/blog/?p=1136 (heimild myndarinnar)
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »
október 5th, 2011
Við fórum í stöðvavinnu í síðustu viku. Við fengum að klóna mús í tölvu. Það var ekki svo raunverulegt, en það var fyndið. Ég gerði verkefni um Ríkjanda og Víkjanda. Ég er farinn að skilja hvernig þetta virkar.

Við notum svona töflu þegar við vinnum með ríkjanda og víkjanda.
http://www.jackrussell.ch/images2/01img/FarbEngl01.jpg
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »
september 28th, 2011
Fann eitt myndband um gen. Þar er m.a. fjallað um Ríkjanda og Víkjanda.
http://www.youtube.com/watch?v=54wxJ6E_2K8
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »
september 27th, 2011
Í síðustu viku fórum við m.a. í stöðvarvinnu. Þar fengum við m.a. að skoða sæðisfrumur úr nauti í smásjá. Ég hef að vísu gert það áður, en það var samt mjög cool!

Þetta leit einhvernveiginn svona út, en þetta eru einmitt sæðisfrumur úr nauti. (heimild af myndinni)
Við erum að byrja í erfðarfræði núna. Á mánudaginn vorum við í náttúrufræðitíma og þá var Gyða (kennarinn okkar) með fyrirlestur. Hún fjallaði m.a. um hugtökin Ríkjandi og Víkjandi. Hún lýsti fyrir okkur tilraun sem einhver kall gerði (man ekki hvað hann hét). Hún virkaði þannig að hann var með baunaplönntur og frjógaði hávaxna plöntu sem varu „undan“ einni hávaxinni plönntu og einni lávaxni plöntu með með frjókornum af annari slíkri plönntu. Þá gat hann verið 75% viss um að þegar hann sáði fjæi af blóminu sem hann fjógvaði væri hávaxin.
Þar sem að afi minn á gróðurhús þá gæti ég örugglega fengið að prófað tilraunina. Það væri ekki leiðinlegt.
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »
september 7th, 2011
Í þessari viku erum við búin að fara í próf, eða könnun. Það var margt sem ég vissi ekki, t.d. formúlan að ljóstillífun. Þetta próf var líka upp úr plaggötunum sem við gerðum. Ég hef ekkert meira að segja.
Posted by kjartan,
in Færslur
No Comments »