Posts by date

12.desember :)

Posted by liljasaeta96 on desember 16, 2011 with No Comments
in Náttúrufræði!

mánudaginn 12.desember kom Elsa Ingjaldsdóttir í stofuna til okkar og gaf okkur fyrirlestur um neysluvatnelsa20sept202006 og svo í enda tímans fengum við að smakka mismunandi vatn, annað sem var „gamalt og gott“ eins og hún sagði, sem var búið að síast í gegnum fleiri jarðlög , og svo líka yngra vatn sem var með meira hitaveitubragði sem var ekki gott. Hún sagði okkur líka að aðeins basískara vatn ( með meira pH) væri betra og hvað þau skoða við gæða eftirlit s.s. örverur, leiðni og sýrustig.

Sundmannakláði :[   Myndband

Wikipedia síða um vatn

„Er vatn á Íslandi betra en annars staðar í heiminum, og þá afhverju?“

Vatnið á Íslandi er svona gott því það er með litla leiðni og  hærra sýrustig (pH) :)

 

 

<——————-ekki jafn gott og úr krönunum heima samt ;)

 

 

P.s. síðasta bloggið mitt fyrir jólafrí!! :D

5.-9.desember :D

Posted by liljasaeta96 on desember 12, 2011 with No Comments
in Náttúrufræði!

Mánudaginn 5.desember var fyrirlestur,eins og alltaf, en núna um jarðfræði,berg og steindir. Við skoðuðum eiginlega allan tímann blogg og myndbönd en svo töluðum við líka um demanta og hvernig þeir myndast. Demantur sem er 1 karat er 0.2 grömm og þyngsti demantur sem hefur fundist var rúm 600 grömm og um 3000 karöt og hann var kallaður cullian en hann var svo bara skorinn niður…

Fimmtudaginn 8.desember fórum við yfir fleiri blogg og svo áttum við að skrifa spurningar sem koma kannski á  fimmtudaginn. Svo horfðum við á smá part af fræðslumynd og bættum inn á hugtakakortin

Föstudaginn 9.desember vorum við í tölvuveri og það var vefrallýýý hérna eru spurningarnar og við notuðum eiginlega bara vefinn frá náttúrufræðistofnun til að svara þeim (:

  • Hver gaf út fyrsta jarðfræðikortið á Íslandi og hvenær?

  • Hvað sýna jarðfræðikort?

  • Hvað táknar guli liturinn á þessu korti?

  • Hvað er steind?  Nefndu dæmi um hvernig þær eru flokkaðar. 

  • Hvaða nýja íslenska steind fannst fyrir nokkrum árum?

  • Hvað er merkilegt við móberg?

  • Segið frá myndun Surtseyjar.

  • Segðu frá flokkun bergs.

  • Hvaða berg er algengast á Íslandi?

  • Hvað eru jarðminjar (geosites)?

  • Hvaða viðmið eru notuð við mat á verndargildi jarðminja á Íslandi?

  • Hvaða hættur steðja að jarðminum?

  • Hvað er grunnvatn?

  • Skoðið Katla geopark  Hvað er jarðvangur?

 

Svo á laugardaginn var tunglmyrkvi en hann sást voða lítið frá Íslandi ://

 

 

 

 

22.-25.nóvember OG 28.nóvember-2.desember :)

Posted by liljasaeta96 on desember 2, 2011 with No Comments
in Náttúrufræði!

Mánudaginn 22. byrjuðum við á nýjum hlekk, jarðfræði og jörðin ofl., sem mér líst rosa vel á því ég gerði ritgerð um jörðina og veit helvíti mikið um þetta :D svo fengum við bara nýtt hugtakakort og glósur og við spjölluðum aðeins um þetta, innri gerð jarðar ofl. HÉR er frekar basic myndband af jörðinni þegar hún var ‘Pangea’ og hvernig hún hefur þróast.

Fimmtudaginn 24. vorum við í stöðvavinnu, ég gerði þessar stöðvar:

stöð 2-Alheimurinn bls.138= ég skoðaði fróðleik um segulsvið jarðar á þessari opnu. Jörðin okkar hefur segulsvið sem er myndað af rafstraumum í ytri kjarnanum. Rannsóknir á gömlu bergi styðja þessa hugmynd því þegar járnrík kvika kólnar og storknar verður hraunið segulmagnað því ytri kjarninn er aðallega úr járni. Segulmögnunarstefnan vísar í sömu átt og segulsvið jarðar á þeim tíma þegar bergið myndaðist. Með segulmælingum bergs á mismunandi aldri hafa jarðfræðingar komist að því að segulsviðið hefur snýst við á nokkur þúsund til hundruð þúsund ára fresti. Seinast urðu segulpólskipti fyrir u.þ.b. 700.000 árum.

Stöð 14-Alheimurinn bls.146-vatn, fljótandi og frosið= vötnin miklu eru á landamærum U.S.A. og Canada. Þau samanstanda af Superiorvatni,Michiganvatni,Huronvatni, Erievatni og Ontariovatni.Þau geyma um 20% af fersku yfirborðsvatni jarðar.           Amazon er lengsta og mesta fljót í heimi, á allavegu. Upptök þess eru lengst uppi í Andesfjöllunum í Perú og það er um 6.430 km langt.            Suðurskautsjökullinn er stærsti jökull á jörðinni og hann þekur mestann hluta suðurskautslands, hann er um 13,7 millj. ferkm.

Stöð 13-tölva-Jarðhræringar um allann heim= Skoðaði svona kort sem var hægt að sjá jarðhræringar, eldgos og margt fleira inná.

stöð 4-tölva-lofthjúpur jarðar FSu= Lofthjúpurinn er tiltölulega þunnt lag af lofti umhverfis jörðina. Lofttegundir má finna upp í 500-600 km hæð, en fyrir ofan 80-100 km hæð er loftið orðið svo þunnt að nær algert lofttóm er um að ræða. Þéttleiki loftsins er mestur næst jörðu en minnkar hratt með vaxandi hæð. Um 99% alls lofts er í innan við 30 km hæð og 99,999% af lofti er undir 80 km hæð. Þrátt fyrir að lofthjúpurinn sé mjög þunnur samanborið við þvermál jarðarinnar er hann samt nægur til að verja lífverur fyrir skaðlegum geislum og loftsteinum utan úr geimnum. Í 80 km hæð er þéttleiki lofts meira að segja nægur til að endurvarpa og dreifa sólargeislum. Í neðstu lögum lofthjúpsins valda upphitunaráhrif sólarljóss uppstreymi vatnsgufu sem verður uppspretta margra veðurfræðilegra þátta svo sem skýjamyndunar, úrkomu, lægða, fellibylja, skýstrokka og þrumuveðurs. Án lofthjúpsins væri ekkert veður og ekkert loftslag.

Heaven and earth bók= Skoðaði fullt af rosa flottum myndum, rosa sniðug bók. Hún byrjar á því minnsta t.d. DNA og fer svo alltaf útí stærra og stærra, endar á mynd af mörgum vetrarbrautum ofl.

Föstudaginn 25. vorum við í tölvuveri að skoða Stellarium forritið.

Mánudaginn 28. fengum við glósur um jarðfræði Hrunamannahrepps. Við töluðum frekar mikið um Kerlingafjöll, sem eru greinilega eitthvað merkileg. Kerlingafjöll eru aðallega gerð úr Líparíti sem er súrt gosberg. Súrt gosberg er bergtengund sem myndast hefur í gosi og hlutfall kísils í því er frekar hátt.

Fimmtudaginn 1.desember var stöðvavinna og ég var með hrafnhildi j.b í hóp (: þetta eru stöðvarnar sem við gerðum:

Stöð 1-Hrafntinna=Fólk trúði því að ef að hrafntinna væri í húsinu og enginn vissi af henni þar þá myndi ekki kvikna í húsinu.Myndun: EF líparít storknar við öra kólnun myndar það kolsvart og glerkennt berg, sem heitir Hrafntinna.

Stöð 2-Greina steina= á þessari stöð greindum við steina! fyrsti var silfurberg, annar stilbít, þriðji bergkristall,, fjórði granófýr svo fundum við ekki hina.

Stöð 3-eðalsteinar= Eðalsteinar eða gimsteinar eru skrautsteinar sem hafa næga hörku til sð rispast ekki við daglega notkun. Skrautsteinar eru náttúrulegar steindir eða bergtegundir og eru notaðar til skrauts t.d. demantar, rúbínar, smaragðar, zirkónar og tópasar.

Stöð 4-Silfurberg, Icelandic spar-hvað er svona merkilegt við það?= Silfurberg hefur gegnt fjölbreyttu og ómissandi hlutverki í vísindauppgvötunum, sem sumar hverjar urðu tilefni til Nóbelsverðlauna. Þær flýttu framþróun ýmissa sviða raunvísinda á 19.öld og fram eftir 20. til dæmis í rafsegulfræði, lífrænni efnafræði, kristalla og steindafræði, og nútímaeðlisfræði sem byggir meðal annars á kenningum Einsteins. Lengi vel fannst

silfurberg bara á Íslandi en nú er búið að friða hana hér á landi.

Stöð 5-Friðlýstir steinar= Samkvæmt lögum nr.44/1999 um náttúruvernd eru bara dropasteinar friðlýstir hér á landi. Annarsstaðar en á friðlýstum svæðum þarf leyfi landeigenda til að taka grjót. Ef til stendur að flytja grjótið úr landi ber að tilkynna það til Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Stöð 8-Mánaðarsteinar= Tíminn var búinn þannig við skrifuðum bara um okkar mánaðarsteina (: Janúar: Granat,eilíf vinátta. Febrúar: tryggð og hreinskilni.