Posts by date

27.janúar- 2.febrúar!

Posted by liljasaeta96 on febrúar 2, 2012 with No Comments
in Náttúrufræði!, Upplýsingatækni!

Föstudaginn 27.janúar kom Gyða aftur! Við vorum í tölvuveri og við fórum í rosa skemmtilegan leik, eða phet forrit, sem heitir Energy Skate Park . Hann snýst um það að sjá hversu mikla orku strákur, stelpa, hundur, padda eða 5 kg kúla notar á hjólabretti. Maður getur ráðið hversu mikið þyngdarafl er þar sem maður er og svo er hægt að ráða hvort maður sé á Jörðinni, Tunglinu, geiminum eða á Jupíter og ýtt á takka og þá kemur súlurit  sem sýnir orkunotkunina og svo margt fleira! Energy Skate Park

 

Mánudaginn 30.janúar byrjuðum við á nýjum hlekk (reyndar soldið á eftir áætlun) og heitir hann Orka og rafmagn. Rosa spennó. Við fengum góðan fyrirlestur frá Gyðu og talaði hún aðallega um eðlisfræði rafmagns, svo fengum við líka glósur og hugtakakort sem við skrifuðum á og Gyða fór aðeins með okkur í frumeind og uppbyggingu hennar. Það er rafmagn í öllum hlutum og það hefur alltaf verið til. Rafmagn er ekki bara í tækjum sem við notum og inn stungunum heima hjá okkur.

Hvað er rafmagn?-Vísindavefurinn

Fimmtudaginn 2.febrúar var stöðvavinna og ég lenti með Alexöndru sem var mjög gaman en fyrst gerðum við allveg 3 stöðvar útfrá 8.bekkjar síðunni því einhver gleymdi að loka henni, en enginn skaði skeður, þannig við náðum ekki að gera margar stöðvar.  Hérna eru stöðvarnar sem við gerðum:

1. Phet forrit: Við fórum í skate park en hann var aðeins öðruvísi en venjulegi, hann var einfaldari og minna hægt að gera í honum

2. Hátæknivefur grunnskólans. við fórum inn á síðuna og þar er skrifað um hversu nauðsynlegt rafmagn er fyrir heiminn. Það er ekkert orkuform jafn fjölhæft. Það er fullt af mjög góðum fróðleik þarna.

3. Tilraun með vatnsbunu. Við tókum reglustiku og nudduðum henni við ull. Þá myndaðist stöðurafmagn. við héldum svo reglustikunni rétt við hliðina á mjórri vatnsbunu og þá hreyfðist hún frá reglustikunni. Þá var reglustikan að hrinda vatninu frá sér.

4. Við reyndum að ná rafmagni úr appelsínu en það virkaði ekki, örugglega útaf því að við röðuðum ekki járnunum sem við stungum í hana rétt og hún var gömul :( en samt gaman að prófa.

Energy Skate Park Screenshot