feb. 19th, 2012

Hæhæ ætla að blogga fyrir 5.-11.febrúar þvi að ég gleymdi því í síðustu viku :)

Semsagt á mánudaginn var fyrirlestrartími fórum meðal annars yfir þetta:

  • spenna – straumur og viðnám
  • lögmál Ohms
  • framleiðsla rafstraums
  • riðstraumur – jafnstraumur
  • raforka og rafafl

Á fimmtudaginn vorum við bara að vinna á milljón við að svara spurningum úr Orkan bókinni og gera eyðufyllingar og allskyns verkefni :)

Á föstudaginn var svo próf úr hlekknum, það var frekar erfitt en ég er ágætlega ánægð með útkomuna bara:)

Hef þetta ekki lengra :) -Margrét Hrund
Set hér inn um lögmál Ohms en það er tekið héðan.

Ohmslögmál eða lögmál Ohms er regla í rafmagnsfræði, sem segir að rafstraumur í rafrás sé í réttu hlutfalli við rafspennu. Ohmslögmál er kennt við Georg Ohm (1789-1854) og skilgreinir rafmótstöðu (rafviðnám) R rafrásar, sem hlutfall spennu U og straums I í rásinni, þ.e.

  • R = U/I eða
  • U = IR eða
  • I = U/R.

Hér sést hvernig þessi regla virkar. ;)

Mynd tekin hér