2012
05.11
Jæja kæra bloggsíða, nú er sko aldeilis kátt í kotinu. Skólinn eralveg að verða búinn og því er þetta seinasta færslan mín hér. Í gær var fimmtudagur og töluðum við ansi mikið um til dæmis krabbamein og veirur. Svo eftir löngu samræðurnar fórum við í verkefni þar sem við reiknuðum formúlur svo sem Newton og þyngd og massa og svo framvegis.
‘Sir Isaac Newton var breskur vísindamaður sem er talinn frumkvöðull í eðlisfræði og án vafa einn mesti hugsuður mannkynssögunnar. Hann fæddist árið 1642 og lést 1727.
Sagan segir að Newton hafi eitt sinn setið undir eplatré og hafi séð epli falla úr því. Hann á þá að hafa byrjað að velta því fyrir sér hvað ylli því að eplið félli lóðrétt til jarðar, og hvort sami kraftur væri orsök þess að tunglið hreyfist á braut um jörðu. Að loknum margra ára rannsóknum birti hann lögmál sín þrjú um hreyfingu og fjórða lögmálið, þyngdarlögmálið, sem skýrði í einu lagi fall eplisins og hreyfingu tunglsins.’
Tekið af þessari síðu.
En í dag er tölvutími og eigum við að blogga í seinasta skipti. Eftir bloggið getum við farið í sjálfsprófin hans Einars. Hér er krabbameins grein sem við skoðuðum í gær. Núna förum við svo að undirbúa okkur fyrir lokaprófið sem verður í næstu eða þarnæstu viku. En fyrst að ég hef ekki verið góður bloggari þá held ég mér ‘Ekki’ við hefðina og blogga ‘stutt’ eins og vanalega, og hér með segi ég bless Flúðaskóla nátúrufræðis blogg !

2012
05.08
í þessari viku vorum við aðallega í upprifjun fyrir lokapróf Flúðaskóla í Náttúrufræði árið 2012 ! við fegnum upprifjunarheftin okkar á mánudaginn 30 apríl og unnum við í þeim þá. á fimmtudaginn þá vorum við í öðru hefti sem við fengum og ég og geir unnum það saman. föstudaginn eftir það vorum við í tungufellsdal og unnum upp nokkur verkefni til upprifjunar, svo voru sjálfsprófin hans Einars á sínum stað. í gær fórum við í sjúkrapróf til upprifjunar.
svo er bara lokapróf …
2012
04.24
Já á mánudaginn í seinustu viku þá hreinlega man ég ekki hvað við vorum að gera og það stendur ekkert inn á heimasíðunni, en eg held að við vorum í sjálfsprófunum hans Einars. Á fimmtudaginn var Sumardagurinn fyrsti og í tilefni dagsin var frí í skólanum. Daginn eftir var föstudagur og byrjuðum við þá á upprifjunarverkefni sem fellst í því að finna eitthvern námsþátt tengt náttúrufræði og skrifa upprifjun á heilt A4 blað auk 3 spurningum sem felast í textanum. Ég og Geir unnum saman og tókum við þá ákvörðun að fjalla um eldfjöll. Við eigum að skila verkefninu á fimmtudaginn í þessari viku en við kláruðum það í tímanum í gær. Eldfjöll Nikulás og Geir) hérna er verkefnið.
2012
04.17
í þessaari viku vorum við í upprifjun um einkenni lífvera, efni í lífverum, skipulagi lífvera frá frumu til lífveru og vistfræði. þetta vorum við að rifja upp á fimmtudaginn þó ég hefði aldrei heyrt margt áður á æfi minni. En á föstudaginn vorum við svo í sjálfsprófunum hans Einars Jónssonar. Þægileg vika og stutt blogg..
2012
03.27
já ég varmeget veikur þessa náttúrufræði viku og missti ég því af tilrauna fimmtudeginum og prófsmánudeginum. en ég var í skólanum á föstudaginn þar sem við áttum að vera vinna í skýrslugerð en ég missti af tilraununum þannig að ég vann eina stöð úr tilraununum sem var próf um atóm og fleira, það gekk mjög vel
á mánudaginn var sýrustigsprófið en ég var veikur þá svo ég missti af þvi. Einnig var fyrirlestur um meiri sýrustig og jónir. !
2012
03.20
já á fimmtudaginn vorum við saman allur bekkurinn vegna þessa að Evelyn var að fara til Reykjavíkur minnir mig, en í nátturufræðitímanum vorum við að skoða eitthvað í tölvunni og svo horfðum við á fræðslumynd úr þættinum Power of the planet. Fínasti fimmtudagur. Föstudagurinn var tölvutími og tókum við þar sjálfsprófin hans Einars Jónssonar. Á mánudaginn eða í gær var fyrirlestratími um sýrustig og jónir:) við lærðum um pH en það er (mælieining) fyrir sýrustig. pH7 er hlutlaust vatn eða vatn með engu bragði, vatnið hjá okkur íslendinum er um það bil pH9. en alveg ágæt vika-ur.
sýrustigsmynd.
2012
03.13
Í síðustu viku var mánudagur og á þeim degi var klárað að fara yfir samrænduprófsheftin. Á fimmtudaginn var hin magnaða PISA könnun sem var frábær en hún var fyrir hádegi og fengum við svona hálfgert frí í náttúrufræðitímunum sem voru efti hádegi því við vorum búin að vera taka svo mikið á í prófinu. Það var hægt að velja um að horfa á mynd eða fara í spurningakeppni. Á föstudaginn var tölvutími og skoðuðu við þar féttir sem voru athyglisverðar. Einnig fórum við í svona verkefnaleik um mannslíkaman þar sem hægt var að finna hvar beinin ættu að vera í líkamanum og fleiri líkamshlutar eins og vöðvar. Á mánudaginn var ég ekki í tímanum en ég fétti að þau voru að fræðast um virkjanir. svona var vikan vikunar.. á fimmtdaginn er tími en ég veit ekki hvað við gerum þá .
2012
02.28
Langt síðan ég hef bloggað, en fyrir viku eða tveim vikum þá vorum við í stöðvavinnu sem var tilrauna stöðvavinnu. Ég vann með Hrafnhildi frænku minni og gerðum við tvær tilraunir.
Rafsjá. Áhöld: Flaska, gúmmítappi, tvær bréfaklemmur, tvær rifur af álpappír, plaströr, blaðra og stálull.
Við settum tappan í flöskuna og var gat í tappanum svo við þurftum ekki að gera gat í hann fyrir bréfaklemmurnar sem við settum saman með álpappírnum sem myndaði rafsjá. Svo nudduðum við rafullinni við blöðruna, þegar blaðran komst í snertingu við rafsjáinn átti hann að hreyfast en hann gerði það ekki.
Við endurtókum tilraunina aftur, en í þetta skipti notuðum við reglustiku í stað fyrir blöðru, og viti menn! Rafsjás tilraunin heppnaðist!
Tilraun með vatn og rafmagn Áhöld: krani, ull og reglustika.
Við kveiktum á krananum þannig að það kom aðeins smá buna, svo nudduðum við ullina við reglustikuna og settum hana að vatninu en pössuðum að hún myndi ekki snerta bununa. Þegar reglustikan kom nálægt bununni hreyfðist hún í hina áttina ( líkt og og þegar + og + skaut komast nær hvoröðrum). Þetta gerist vegna þess að þegar þú nddar ullina við reglustikuna þá myndast rafmagn og ýtir vatninu frá sér.
Í vikunni eftir stöðvavinnuna var verkefnatími þar sem við vorum að vinna verkefni í bókinni ‘Orka’ og gékk það bara fínt. í lok þeirra viku var próf úr 6.kafla ef ég fer með það rétt og það gékk bara vel. Í vikunni eftir það minnir mig.. fengum við súper erfitt verkefnablað sem við erum að vinna í tímum, einnig fengum við gamalt samrændupróf sem við erum líka að vinna í tímum.
Ég mun setja inn mynd af lekaliðanum rétt bráðum.. ég týndi snúrunni af myndavélinni, en hún ætti að fara koma brátt inn.

2012
01.27
Í dag var fyrsti náttúrufræðitími vikunnar því Gyða er búin að vera veik. En í dag vorum við í tölvuveri í netleik sem var um þyngdarafl og svo framvegis. Leikurinn hét Energy skate park. Maður var maður á hjólabretti og gat maður séð hvernig þyngdaraflið lék við mannin á alskynsstöðum líkt og í geimnum, á Jörðinni, á Júpíter og á Tunglinu. Ég prufaði að gera hring út í geimnum og gáði hvort að maður myndi ferðast allan hringinn og hann gerði það. Ástæðan er sú að þyngarkrafturinn í geimnum er enginn. Svo minni ég á það sem Gyða sagði: ,,Orka eyðist ekki, hún breytit bara um mynd.“
2012
01.23
Í fyrstu viku skólans á árinu 2012 vorum við að byrja á vísindavikunni. Ég og Geir vorum saman í hóp og hét tilraunin okkar vítanýting. V´sindaspurninginnn var: Afhverju eru stærri körfuboltamenn með verri vítanýtingu en minni menn? Tilraunin fór þannig fram að Geir tók 10 venjuleg víti á körfuboltakörfu. Við tókum nýtinguna af því og var hún svo að hann hitti 9 af 10 skotum. Í seinni aðferðinni stóð hann á palli sem gerði hann 2,15 metra háan og var hann einnig með stóra hanska sem gerði hendur hanns stærri. Geir hitti 6 af 10 skotum. Í NBA eru flestir stórir menn með lélega nýtingu. En tilraunin okkar er ekki alveg 100% sannfærandi vegna þess að Geir er auðvitað ekki vanur að vera svona stór og með svona stórar hendur. Við skiliuðum verkefninju á plaggat og myndaf henni er hér og í verkefnabankanum.
