2012
01.27
Í dag var fyrsti náttúrufræðitími vikunnar því Gyða er búin að vera veik. En í dag vorum við í tölvuveri í netleik sem var um þyngdarafl og svo framvegis. Leikurinn hét Energy skate park. Maður var maður á hjólabretti og gat maður séð hvernig þyngdaraflið lék við mannin á alskynsstöðum líkt og í geimnum, á Jörðinni, á Júpíter og á Tunglinu. Ég prufaði að gera hring út í geimnum og gáði hvort að maður myndi ferðast allan hringinn og hann gerði það. Ástæðan er sú að þyngarkrafturinn í geimnum er enginn. Svo minni ég á það sem Gyða sagði: ,,Orka eyðist ekki, hún breytit bara um mynd.“
2012
01.23
Í fyrstu viku skólans á árinu 2012 vorum við að byrja á vísindavikunni. Ég og Geir vorum saman í hóp og hét tilraunin okkar vítanýting. V´sindaspurninginnn var: Afhverju eru stærri körfuboltamenn með verri vítanýtingu en minni menn? Tilraunin fór þannig fram að Geir tók 10 venjuleg víti á körfuboltakörfu. Við tókum nýtinguna af því og var hún svo að hann hitti 9 af 10 skotum. Í seinni aðferðinni stóð hann á palli sem gerði hann 2,15 metra háan og var hann einnig með stóra hanska sem gerði hendur hanns stærri. Geir hitti 6 af 10 skotum. Í NBA eru flestir stórir menn með lélega nýtingu. En tilraunin okkar er ekki alveg 100% sannfærandi vegna þess að Geir er auðvitað ekki vanur að vera svona stór og með svona stórar hendur. Við skiliuðum verkefninju á plaggat og myndaf henni er hér og í verkefnabankanum.
