Hlekkur 6 Vika 2
Þriðjudagur, febrúar 7th, 201230. jan – 3. feb
við vorum í prófi seinasta föstudag(3. feb) úr hlekknum og þetta er það sem var farið útí í prófinu:
Varmaorka
- varmi er ein mynd orkunnar.
- varmi flyst í gegnum tómarúm með varmageislun.
- þegar varmi flyst með staumum í vökva og loftegundum er það kallað varmaburður.
- þegar varmi flyst með beinni snertingu sameinda er það kallað varmaleiðing.
- glerull er ekki góður varmaleiðari.
- Hiti er mælikvarði á hreyfiorku sameinda.
- orka sem bundin er í sameindum nefnist efnaorka.
- sú mynd orkunnar sem tengist hreyfingu hluta kallast hreyfiorka.
- vatn sýður við 100°c.
- lægsti hiti sem er hægt að ná er alkul.
- eðlisvarmi vatns er 1 kal/g * °C.
- kaloría svara til þess varma sem þarf til þess að hita 1 gramm af vatni um 1 °C.
- þakplötur úr kopar kæmu að litlu gagni við einangrun húss.
- Innra rými kæliskáps kólnar þegar varmin þaðan er notaður til að breyta kælivökva skápsins í klórsambönd
- Sameindir eru örsmáar eindir efnis.
- ís hefur sama eðlismassa og fljótandi vatn.
- ein kílókaloría jafngildir jafngildir 1000 kaloríum.
- Hitastillar eru oft með tvímálsrofa.
- tíu grömm af vatni við 70°C býr yfir minni varmaorku og 100 grömm af jafn heitu vatni.
- Hvorki er hægt að skapa orku né eyða.

Heimildir fengnar úr prófi
Myndband sem útskýrir mun á hita og varma.
Frétt um smástirnið Eros sem átti leið hjá jörðu núna 31. feb (svona í tilefni þess að við vorum fyrir stuttu í stjörnufræðinni).
Brátt mun hlýna í Evrópu eftir að sumstaðar hafi hitastigið farið niður í -40°C -Frétt
Posted by rakel,
in Uncategorized
No Comments »