Nýskráning / Innskráning
07
febrúar

Hæ hæ.

Á mánudaginn fengum við glósur og fyrirlestur um LJÓS.

Á miðvikudaginn horfðum við á myndbönd með Rubins tube og sandur og tíðni. En einnig myndband um bylgjur. Við töluðum einnig saman og kíktum á þessi myndbönd: 1. Brú  sem hrundi vegna þess að vindurinn blés á sömu tíðni og hún.       2. Glasaharpa og skoðuðum fréttir.

Á fimmtudaginn var stöðvavinna og ég og Ylfa fórum í þessar stöðvar: 1. Tölva phet-forrit bylgjur og bylgjubrot, tíðni og útslag. 3. Hátíðnihljóð – úthljóð – bergmálsmiðun. Kíkjum á leðurblökur og söngur! eða vísindavefurinn. 5. Tölva phet-forrit – bylgjur – skoða fyrst  fyrsta flipann og fara síðan í leikinn.- búðu til bylgjuna. Reyndu að komast í erfiðleikastig 4.

Kv.

STÆRÐFRÆÐINÖRDINN

24
janúar

Lítið að gera!!!

Written by runar. No comments Posted in: Uncategorized

Hæ hæ.

Á mánudaginn vorum við að byrja í nýjum hlekk: Eðlisfræði-Bylgjur og Rafmagn. Við fengum glósur en við áttum að skrifa á hugtakakortið allt sem við vissum um bylgjur, það var ekki mikið. Síðan gaf Gyða okkur fyrirlestur um efnið og lét okkur teikna mynd sem er það mikilvægasta um bylgjur.

Línan stóra línan er jafnvægisstaðan. Á línunni með örvunum er bylgjulengd orðið neðst niðri í horninu er öldudalur hann er það þegar bylgjan fer niður en á svipuðum stað uppi er bylgjutoppursem er efri bylgunnar hápunktur eins og öldutoppurinn er lægsti punkturinn. Inn í bylgjunum er sveifluvídd og er það hve langt bylgjan sveiflast. Myndinn sést betur ef þið smellið á heimildina.

Heimild myndar:http://blogg.fludaskoli.is/natturufraedi/files/2010/01/image007.jpg

Kv.

STÆRÐFRÆÐINÖRDINN

Hæ hæ.

Á mánudaginn var dagurinn sem við framkvæmum tilraunina úúúúúú við tókum myndband, Einar tók upp Ég gerði tilraunina.

Á miðvikudaginn vorum við Einar að reyna að finna lag við myndbandið, það er erfiðara en virðist, við völdum Jaws þemalagið og In the Jungle Með The hippo and the dog. Síðan förum við heim og Einar lagar myndbandið til.

Á fimmtudaginn var stóri dagurinn við Einar sýndum myndbandið og okkur gekk bara vel. Hér er myndbandið.

Náttúrufræðisíðan.

Nú er hlekkurinn búinn.

Þetta er tilraun frá stelpum í skólanum en hún er eins og vina minna.

Þetta var allt.

Kv.

STÆRÐFRÆÐINÖRDINN

 

12
janúar

Aukalogg! Aukablogg!!!

Written by runar. No comments Posted in: Uncategorized

Hæ hæ.

Er að blogga því að hér er myndbandið af tilrauninni. 

10
janúar

Gleðilegt nýtt ár!!!

Written by runar. No comments Posted in: Uncategorized

Hæ hæ.

Á mánudaginn var ekki skóli því skólinn byrjaði á þriðjudaginn.

Á miðvikudaginn byrjuðum við í nýjum hlekk sem kallast VÍSINDAVAKAN í þessum hlekk veljum við okkur tilraun til að gera og sína hana svo bekknum. Einar og ég vorum saman í hóp. Við glósuðum niður sérstaka hluti sem Gyða sagði okkur frá.

Á fimmtudaginn  völdum við tilraun. Við ráðum hvort við gerum plakat, myndband og skýrslu; Við Einar, félagi minn, völdum myndband. Tilraunin sem við völdum heitir Gosbrunnur, hún snýst um hvort það sé rétt og hvernig loftþrýstingur hefur áhrif á vatn.

Hér er myndband sem við fundum á netinu sem sýnir tilraunina. Ef þið viljið sjá tilraunina farið þá í flokkinn myndbönd og þar í Gosbrunn í meiri gæðum.

Hér er náttúrufræðisíðan, ég er undir 8. bekk en þar sem þið lendið fyrst eru margar síður þar sem þið getið fundið skemmtilegar tilraunir.

Kv.

STÆRÐFRÆÐINÖRDINN

13
desember

Hæ hæ.

Á mánudaginn horfðum við á fræðslu þátt sem hét Rare Earth Með Ian Stewart sem er frá BBC Hann sagði okkur frá því hvað við séum heppinn að jörðin sé eins og hún sé ef eitthvað væri öðruvísi: staðsetning, lofthjúpurinn væri eins og hjá Mars hefði allt súrefni flotið í burtu og þá væri jörðin óbyggileg.

Á miðvikudaginn fengum við fyrirlestur úr glósunum sem okkur voru afhentar og kíktum við á blogg og fréttir. Fjallað var um ský, segulljós og lofthjúpurinn ásamt ósonlaginu.

Á fimmtudaginn gerðum við hópurinn minn og ég plakat um gróðurhúsaáhrifin og kynntum það. Vissuð þið að þegar geislar sólarinnar fara inn um lofthjúpinn endur kastast þeir til baka en aðeins lítill hluti fer út en hitt verður eftir og endurkastast um jörðina og hitar hana. En vegna mengunar okkar manna verður ósonlagið í lofthjúpnum þykkara og þess vegna fer minna út úr lofthjúpnum og meira verður eftir og að því stafar hlýnun jarðar og vegna hennar bráðna jöklarnir og ef þeir bráðna alveg hækkar sjávarborð jarðar um 2 metra og þá fara flest öll lönd jarðar fara ákaf og milljónir manna drukkna. Þess vegna þæurfum við að hætta að menga og fara vel með jörðina okkar áður en það verður of seint.

Plakatið okkar.

Bekkurinn minn.

Fréttir.

Náttúrufræðisíðan.

Gróðurhúsaáhrifin.

Kv.

STÆRÐFRÆÐINÖRDINN

06
desember

Fullt tungl!

Written by runar. No comments Posted in: Uncategorized

Hæ hæ.

Á mánudaginn vorum við í tölvuveri og skoðuðum forrit um stjörnuskoðun, einnig skoðuðum við vef um tunglið.

Hér er 1 vefur sem við skoðuðum. 

Á miðvikudaginn fengum við glósur um myrkva tungls og sólar og sérstaklega um tungl. Gyða gaf okkur fyrirlestur um þetta.

Blogg og fróðleikur eru inn á náttúrufræði síðunni. 

Á fimmtudaginn vorum við í hópavinnu um tunglið. Minn hópur tók sjávarföll, sem sagt flóð og fjara. Flóð eru 2 á dag og fjara er 2 á dag. Flóð og fjara verða vegna þess þegar tungl og sól toga í jörðina og yfirborð sjávar.

Hópurinn minn.

Plakatið okkar.

Kv.

STÆRÐFRÆÐINÖRDINN

 

29
nóvember

Svakaleg plaköt!

Written by runar. No comments Posted in: Uncategorized

Hæ hæ.

Á mánudaginn vorum við í tölvuverinu á skemmtilegum síðum um jarðskjálfta í heiminum og Íslandi á seinustu vikum. við áttum að gera verkefni um hverjir voru hvar voru stærstu jarðskjálftarnir á seinasta sólarhring og í seinustu viku. Verkefnið mitt er inn á verkefnabankanum.

Síðurnar með jarðskjálftunum. Á Íslandi. Í heiminum. Íslensk og erlend eldgos var líka vefur þarna.

Á miðvikudaginn fengum við skýrslur og vinnumöppur úr síðasta hlekk og önn. Við byrjuðum á nýjum hlekk og nýrri önn. Hlekkurinn var um jarðfræði og stjörnufræði. Rifjuðum upp t.d. innræn og útræn öfl, flekaskil, tungl og sólmyrkva og Pangeu.

Á fimmtudaginn vorum við að búa til plaköt í samvinnu við samfélagsfræðina. Minn hópur hafði viðfangsefnið Bergtegundir. Við bjuggum til flott plakat. Vissuð þið að algengustu bergtegundir eru storkuberg, myndbreyttberg og setberg.

 

Hópurinn minn.

Plakatið.

Fréttir.

Náttúrufræðisíðan.

Fróðleikur um berg.

Kv.

STÆRÐFRÆÐINÖRDINN

15
nóvember

Hæ hæ.

Á mánudaginn vorum við í náttúrufræði stofunni og skoðuðum blogg og fréttir, einnig unnum við verkefni í bókinni Efnisheimurinn um lotukerfið.

Á miðvikudaginn vorum við að fara yfir verkefni sem við gerðum á mánudaginn og ræddum um hvenær við ættum að hafa próf því að annarlok eru í næstu viku og líka um tilraunina og skýrsluna fyrir morguninn.

Á fimmtudaginn vorum við að eima sígarettu og meta tilraunina og skrifa skýrslu um hana. Lyktin var ógeðsleg.

Tilraunin uppsett sjá mynd 1.

 

Mynd 1.

Fréttir.

 

Kv.

STÆRÐFRÆÐINÖRDINN

Hæ hæ.

Á mánudaginn vorum við fyrst uppi í náttúrufræðistofunni en fórum svo fljótt niður í tölvustofu og unnum verkefni frá framhaldsskóla verkefni í efnafræði mér gekk mjög vel.

Á miðvikudaginn vorum við að horfa á myndband um lotukerfið og svöruðum spurningum úr því.

Á fimmtudaginn voru bæði náttúrufræði og samfélagsfræði tímunum eitt í plakata vinnu í samfélagsfræði.

Bæði framhaldsskólaverkefnin og spurningarnar úr myndbandinu er á náttúrufræði síðuni.

Lotukerfið.

Fréttir.

Myndband um lotukerfið, hér syngur Daniel Raddcliff (Harry Potter) syngur lagið.

Kv.

STÆRÐFRÆÐINÖRDINN