Hæ hæ.
Á mánudaginn var ekki skóli því skólinn byrjaði á þriðjudaginn.
Á miðvikudaginn byrjuðum við í nýjum hlekk sem kallast VÍSINDAVAKAN í þessum hlekk veljum við okkur tilraun til að gera og sína hana svo bekknum. Einar og ég vorum saman í hóp. Við glósuðum niður sérstaka hluti sem Gyða sagði okkur frá.
Á fimmtudaginn völdum við tilraun. Við ráðum hvort við gerum plakat, myndband og skýrslu; Við Einar, félagi minn, völdum myndband. Tilraunin sem við völdum heitir Gosbrunnur, hún snýst um hvort það sé rétt og hvernig loftþrýstingur hefur áhrif á vatn.
Hér er myndband sem við fundum á netinu sem sýnir tilraunina. Ef þið viljið sjá tilraunina farið þá í flokkinn myndbönd og þar í Gosbrunn í meiri gæðum.
Hér er náttúrufræðisíðan, ég er undir 8. bekk en þar sem þið lendið fyrst eru margar síður þar sem þið getið fundið skemmtilegar tilraunir.
Kv.
STÆRÐFRÆÐINÖRDINN
Stay in touch with the conversation, subscribe to the RSS feed for comments on this post.