3. janúar byrjaði skólinn aftur eftir jólafrí og þá byrjaði jafnframt vísindavaka í náttúrufræði
. Síðan þá erum við búin að vera að vinna í verkefnum tengdum henni. Við erum líka búin að missa af tveimur tímum þar sem báða föstudagana var skólanum aflýst vegna veðurs.
Fyrstu vikuna vorum við bara að setja okkur í hópa og finna okkur tilraun til að gera. Ég var í hóp með Hildi Guðbjörgu, Ragnhildi og Sóley og við gerðum tilraun með vökva og sápu. Tilraunin var svo framkvæmd á mánudaginn og fimmtudaginn í síðustu viku. Til að segja frá tilrauninni okkar gerðum við myndband sem við byrjuðum að klippa saman í skólanum á fimmtudaginn en við gátum ekki klárað svo restin var gerð heima.
Tilraunin snýst um það að fá vökva til að hreyfast þegar sápa er sett ofaní hann og er matarlitur notaður til að sýna hreyfinguna.
Vísindaspurningin okkar var : Hefur fitumagn áhrif á hreyfingu vökva þegar hann kemst í snertingu við uppþvottalög ?
Áhöldin sem við notuðun í tilraunina voru desilítramál, diskur, dropateljari, eyrnapinni, matarlitir, nýmjólk(3,9% fita), rjómi(36% fita), undanrenna(0,1% fita), uppþvottalögur og vatn(0% fita).
Fyrst settum við deselíter af vatni í disk og létum það standa í smá stund svo að það hætti að hreyfast. Þá settum við tvo dropa af matarlit í vatnið, dýfðum eyrnapinna í uppþvottalöginn og dýfðum svo eyrnapinnanum ofaní vatnið. Þegar það var búið þrifum við áhöldin og gerðum svo það sama með undanrennu. Með hana settum við reyndar fleiri dropa af matarlit og í mismunandi litum. Eftir að því var lokið gerðum við það sama með nýmjólk og þar á eftir með rjóma.
Tilraunin tókst mjög vel í alla staði.
Niðurstöðurnar voru þær að matarliturinn hreyfðist lítið sem ekkert í vatninu, svolítið í undanrennunni, mikið í nýmjólkinni og aðeins í rjómanum. Það sem við fundum út með þessum upplýsingum var að á meðan fitan er í litlu magni hreyfist vökvinn meira eftir því sem fitan er meiri, en það gilti hinsvegar ekki með rjómann. Við höldum að sé því að rjóminn sé svo þykkur að hreyfingin verði minni. Samkvæmt þessu ætti vatnið ekki að hreyfast neitt, og við höldum líka að eina ástæðan fyrir því að það hreyfðist eitthvað hafi verið bylgjurnar frá eyrnapinnanum.
Ástæðan fyrir því að mjólkin hreyfist þegar sápan snertir hana er þessi : Sápan blandast ekki mjólkinni heldur flýtur á yfirborðinu og sameindirnar í sápunni reyna að grípa í fituagnirnar í mjólkinni og sundra þeim og við það myndast þessi hringlaga hreyfing á sápunni sem dregur svo matarlitinn með sér.
Þessi tilraun og allt ferlið í kringum hana er búið að vera mjög skemmtilegt og fróðlegt.
Hér er svo myndbandið okkar
Leave a Reply