1 Festið kertið í eggjabikarinn með ögn af bráðnu vaxi og setjið í miðja skálina. fyllið skálina að þremur fjórðu af vatni og hafið tryggt að kertið snerti ekki vatnsborðið. kveikið á kertinu.2 Látið kertið loga í 2-3 mínútur. Hvolfið krukkunni yfir kertið ofurlítið á ská til að sleppa út lofti, því það lækkar yfirborð vatnsins. Athugið vatnsborðið í krukkunni þegar hér er komið.3 Meðan kertið brennur hækkar vatnið í krukkunni til að koma í staðinn fyrir súrefnið sem eyðist.Þegar allt súrefnið hefur verið notað slokknar loginn. Þið sjáið þá að vatnsborðið hefur hækkað allt að einum fimmta. Súrefnið hefur því verið um fimmtungur af upprunalega loftsins.



