Margir ránfuglar éta dauða fiska þegar þeir rekast á þá á fljótsbökkum eða á sjávarströnd. Svo eru nokkrir sem sérhæfa sig í að hremma lifandi fiska í vatnsborðinu. Einn sá snjallasti þeirra er gjóðurinn, en hann má finna nærri ám og vötnum víðast hvar í heiminum, nema á heimskautasvæðunum. Sums staðar keppir gjóðurinn um fæðuna við ýmsar tegundir af haf- eða fiskiörnum, svo sem bjartörninn tígulega í Norður-Ameríku. Allir ránfuglar sem veiða fisk eru stórvaxnir. Þeir eru með sterkt, íbjúgt nef, langar klær og gróft hreistur á fótunum sem hjálpar þeim að ná taki á hálli bráð sinni. Þar sem þeir eru ljósir að lit að neðanverður renna þeir saman við bjartan himininn og dyljast fiskunum fyrir vikið.

