Enter a short paragraph of text or Adsense code, or disable the intro text entirely, in the theme options panel.

febrúar 9th, 2012

Fimmtudagur, febrúar 9th, 2012

Furðuheimur mauranna

Ásamt vespum og býjum eru maurar í ættblálki æðvængna. En ólíkt frændliði sínu hafa fæstir maurar vængi. Maura er að finna í mörgum heimshlutum, flesta þó í hlýjum eða heitum löndum. Meira en 9000 maurategundir hafa fundist víðsvegar um heiminn. Allir maurar lifa í fjölbýli. Í sumum maurabúum eru þúsundir íbúa. Sumir hreiðra sig uppi í trjám, en flestir búa neðanjarðar. Maurar eru smávaxnir. Flestir eru um sentímetri á lengd. en sumir aðeins einn millímetri. Lifnaðarhættir maura eru undraverðir á margan hátt. Sumir halda skordýr, eins og blaðlýs, sem húsdýr og lifa á sætum vökva sem þau gefa af sér. Aðrir hneppa maura annarra tegunda í ánauð.

Powered by WordPress

Blossom Theme by RoseCityGardens.com