Archive for November, 2011
Þurrís
by smokeymcpot on Nov.27, 2011, under óflokkað shit
Á fimmtudaginn vorum við að gera awesome tilraun með þurrís sem var fokking awesome. Það var nátturlega skipt í hópa og allir gera einhverjar stöðvar. Stöðvarnar voru
1. Þurrís og málmur
2.Þurrís og sápukúlur
3. Þurrís og sápa
4. Þurrís í heitt og kalt vatn
5. Þurrís og blöðrur
6. Þurrís og eldur
7. Efnaformúla þurrís og efnahvarf á hamskiptunum sem verða.
Fyrsta tilraun var með málm og þurrís en ég byrjaði samt ekki á henni, en allavegna þá voru svona allskonar járn stönglar sem voru gull, silvur, bronz og plast sem er reyndar ekki járn, Maður leggur bara einhverja stöng á þurrísin og þá kemur viðbjóðslegur ískur. Það heyrðist hæðst í Silfri. Medium í bronsi. Lægst í gulli það kom ekkert úr plasti.
Tilraun 2 þurrís og sápukúlur. Við áttum að plása sápukúlum á þurrís og eftir mínum og Katrínar niðurstöðum sýgur þurrísinn í sig sápuna og líka frosna sápukúlurnar ef þær ná að liggja nógu lengi á þurrísnum.
Tilraun 3. Þurrís og sápa. Það var sett þurrís í skál og heittu vatni var hellt yfir það var síðan tekið tusku og dýft henni í sápu og strokið yfir og þá komu hvítar sápukúlur milljón af þeim og fluttu upp. Þegar maður sprengdi þær þá kom gufa úr þeim frekar awesome.
Tilraun 4. Þurís og heitt og kalt vatn. Við fengum svona lítill tilraunarglös og settum þurrís í það og settum svo heitt og kalt vatn í sikkort glasið. Þegar vatni var blandað við þá kom upp gufa sem var bara vatn í gufuformi það var cool. Síðan var tilraun 5 innifalin í þessu það var sett blöðru á glasið og blaðran blés upp og síðan skaust af það var sneggra með kaldra vatnið en lengur að skjótast af með heita vatnið.
Tilraun 6. Þurrís og eldur. Eldurin var settur nálægt þurrísnum og hann slökknaði samstundis því það vantaði súrefni .
Ég nenni ekki að lýsa 7………
Munurinn á þurrís og venjulegum klaka er að þurrísinn er frosinn koltvísýringur (koldíoxíð, CO2) en klakinn er frosið vatn.
Þurrísinn er miklu kaldari en venjulegur ísmoli. Það sérstaka við þurrís, eða það hvernig hann virkar, er að að hann “bráðnar” allt öðru vísi en venjulegur klaki. Ísmolinn sem við tökum úr kælinum breytist í vatn þegar hann kólnar og ef vatnið er síðan hitað mjög mikið getur það breyst í gufu. Þurrísinn breytist hins vegar beint í gas við það að “bráðna” og hann fer ekki á vökvaform áður. Þess háttar hamskipti kallast þurrgufun.

Hér er myndband af þurrís tilraun.