water power!!!
by smokeymcpot on Dec.16, 2011, under óflokkað shit
12 des. Kom Else Ingjaldsdóttir og var með fyrirlestur um…….vatn, frá heilbrigðiseftirlitinu. Hún sagði okkur frá neysluvatni okkar og leyfði okkur að smakka vatn. Vatn númer 1 var viðbjóðslegt með svona hverabragði, og guess what það var hveravatn. Vatn númer 2 var bara mjög tært og gott vatn sem kom….. ég man ekki alveg.
Hún var að tala um þegar vatn er basískt þá er það gott og ef það væri súrt þá væri það vont eithvað þannig. Hún var líka að tala um sýrustig og það er hámark í evrópu 9-9,4(Ph) eithvað þannig en við höfum 10(Ph) hérna á Íslandi.
Sýrustig er (pH) vatnslausna er mælikvarði sem segir til um það hversu súrar viðkomandi lausnir eru. Sýrustig ákvarðast af magni hlaðinna vetnisjóna, H+, í vatnslausninni. Í hverri sameind vatns eru tvö vetnisatóm (H) og eitt súrefnisatóm (O) og er hún auðkennd með tákninu H2O. Örlítill hluti allra vatnssameindanna í vatni klofnar þó í jákvætt hlaðnar vetnisjónir (H+) annars vegar og neikvætt hlaðnar jónir, OH-, hins vegar. Þetta má tákna með eftirfarandi hætti:
H2O -> H+ + OH
Else talaði um að það hefur bara 50% af fólki aðgang að vatni eins og í Afríku þar hafa bara ekki margir aðgang að vatni, við á Íslandi erum ekkert smá heppin hérna á íslandi.