Björgvin Viðar Jónsson

Archive for nóvember, 2011

Vika 12 :P

by on nóv..29, 2011, under Uncategorized

Þá er vika 12 á enda og var hún nokkuð venjuleg bara. En í henni byrjuðum við á nýjum hlekk sem heitir jarðfræði.  Í mánudagstímanum var fyrirlestra tími um jarðfræði og var hann að mestu leyti upprifjun frá fyrri árum en auðvitað var einnnig eitthvað nýtt. í fimmtudagstímanum var síðan stöðvavinna  um jarðfræði of voru margar stöðvar í boði. Við enduðum síðan vikuna í tölvuverinu og unnum í forriti sem heitir stellarium.

En við áttum að segja aðeins frá stöðvavinnunni á blogginu. Ég komst yfir 5 stöðvar.

Stöð 14 !

Ég byrjaði áþví að skoða lifandi vísindi blað og las þar um skoðaði nokkrar náttúruperlur í heiminum, mér fannst merkilegast loftmynd af ánni Tigró sem er þverá Amasonfljóts í perú. Er 3 km löng frá upptökum til Amasonfljóts.

Stöð 2 !

Skoðaði segulsvið jarðar, Jörðin er 4,56 milljarða ára gömul. Norður og Suður segulskaut víxlast á tímabilum sem geta verið allt  frá minna en en 100.000 ár og alveg uppí  nokkur milljón ár.

Stöð 1  !

Lásum um jarðfræði og sögu hennar en elstu jarðlög á Íslandi eru um  15 milljón ára gömul !

Stöð 11 !

Lásum um besta útsýni í heimi í blaðinu Lifandi vísindi, fjallar um geimstöð sem tekur myndir af hinum ýmsu hlutum eins og jörðinni, tekur mjög flottar og áhugaverðar myndir !

Stöð 13 !

Fórum inn á vefsíðu og skoðuðum jarðhræringar í heiminum síðastliðna viku, t.d. eldgos eða jarðskjáltfa.

 

Rakst á tvær fréttir sem mér fannst áhugaverðar þó þær tengist námsefninu kannski ekkibeint hér og  hér

Einnig  fann ég fróðlega jarðfræði sem tengist surtsey ! hér

Leave a Comment more...

Vika 11 :p Þurrís!

by on nóv..16, 2011, under Uncategorized

Já.. þá er vika 11 á enda og var hún bara nokkuð skemmtileg. Á mánudaginn var einn tími en á fimmtudaginn var heljarinnar tími um þurrís og mun þetta blogg fjalla um  hvað við gerðum og þess háttar :P

Þurrís

Munurinn á þurrís og venjulegum klaka er að þurrísinn er frosinn koltvísýringur (koldíoxíð, CO2) en klakinn er frosið vatn.

Þurrísinn er miklu kaldari en venjulegur ísmoli. Það sérstaka við þurrís, eða það hvernig hann virkar, er að að hann „bráðnar“ allt öðru vísi en venjulegur klaki. Ísmolinn sem við tökum úr kælinum breytist í vatn þegar hann kólnar og ef vatnið er síðan hitað mjög mikið getur það breyst í gufu. Þurrísinn breytist hins vegar beint í gas við það að „bráðna“ og hann fer ekki á vökvaform áður. Þess háttar hamskipti kallast þurrgufun.
Þurrís er búinn til úr koltvísýringsgasi í sérstökum vélum. Þurrís er einnig að finna í náttúrunni en þó ekki á jörðinni. Hann finnst á öðrum plánetum þar sem annað hitastig og annar þrýstingur er. Pólhettur Mars eru til dæmis aðallega úr þurrís.

En við unnum semsagt sex stöðvar um þurrís og ætla ég að segja frá þeim, :

Stöð 1, Þurrís og málmur.

Á þessari stöð vorum við með box og í því boxi var þurrís. Einnig fengum við þónokkrar málmtegundir og áttum að láta málmana snerta þurrísinn og komu þá skrítin hljóð. Flest hljóðinn voru þó hálfgert ískur. Hjá okkur heyrðist lang mest í kopar stönginni og skar það hljóð hressilega í eyrun. Einnig prufuðum við að setja allskyns peninga í snertingu við ísinn og heyrðist mest í 50 kallinum þó litlu hafi munað.

Stöð 2, Þurrís og sápukúlur.

Þetta var sú stöð sem vakti hvað mesta athygli hjá mér.  En á þessari stöð fengum við  kassa með þurrís og sápukúluglas og áttum við að blása sápukúlur ofan í kassan þar sem þurrísinn var. Ólíkt því þegar þú blæst þær útí andrúmslotið fór sápukúlann ekki beint niður og sprakk heldur sveif hún rétt yfir þurrísnum í dálilitla stund og að lokum sprakk hún. Okkur tókst að frysta sápukúlu með þeim hætti að þegar að þegar hún sprakk á þurr ísnum tókst ísnum að frysta hálfa sápukúluna og var hún vel sjáanleg og fannst mér það virkilega nett.

Stöð 3 :P Þurrís og sápa !

Á þessari stöð tókum við lítin bala og sem fyrr settum við þurrís ofan í balann. Að því loknu settum við sjóðandi heitt vatn  út á þurrísinn og urðu efnahvörfinn þá svo mikil að það rýkur upp úr balanum. Þá tókum við í langan klút sem legið hafði í sápu og strukum eftir brúnum balans og reyndum að fá eina stóra sápukúlu upp úr balanum.  Því miður gat ég ekki tekið mynband af þessu en þessi gæji  hér sýnir þetta ágætlega :d

Stöð 4.. :p Þurrís í heitt og kalt vatn.

Á þessari stöð settum við semsagt vatn í 2 tilraunarglös, heitt vatn í annað þeirra og kalt vatn í hitt.  Að því loknu settum við einn þurrísmola í hvort glas og stóð þá gufustrókurinn upp úr glösunum. Það voru þó talsvert meiri efnavörf í heitavatninu sem segir okkur það að hiti eykur hraða á efnahvarfi með þurrís. Og reyndar hjá  lang flestum efnum. Þegar þessu var lokið endurtókum við þetta nema í þetta skiptið settum við blöðrur á tilraunarglösin og  þöndust blörðurnar úr og sem fyrr talsvert hraðar hjá blöðrunni á heitavatninu. Að lokum færðist þessi stöð út í vitleysu og héldum við þá áfram :d

Stöð 5 :p Þurrís og eldur.

Þessi stöð var einföld og góð. Þarna áttum við að fara með eld nærri þurrísnum og sjá hvað gerðist. Afleiðingarnar voru einfaldar, eldurinn slökknaði um leið og hann kom nærri þurrisnum. Enda er þurrís frosinn kodvisýringur og er hann notar í slökkvitæki og þess háttar.

Mér fannst þessi finna mjög fræðandi og ágætlega skemmtileg bara.. :P Finnst þurrísinn magnað fyrirbæri ;)

Rauði Textinn er héðan

 

 

 

 

Leave a Comment more...

Vika 10 :P

by on nóv..07, 2011, under Uncategorized

jebb.. þá er vika 10 liðin og var hún bara svona ljómandi ágæt. En öllum að óvörum var fyrilestratími á mánudaginn eins og svo oft áður. Á fimmtudeginum vildi svo óheppilega til að Gyða var ekki og vorum við því sett í verkefna vinnu tengda Efnafræði. En þetta voru bara spurningar beint upp úr lesbókinni sem við áttum að svara. Á föstudeginum vildi þannig til að ég var ekki í skólanum og voru þau líklega að gera eitthvað skynsamlegt ánþess að ég viti það.

Þessar vikurnar erum við eins og áður hefur komið fram að vinna í efnafræði. Okkur gengur misjafnlega að skilja þetta efni en þetta er þó allt að koma og síast þetta betur inn með hverjum tímanum sem við erum í náttúrufræði. Í næstu viku dettur að vísu svolítið niður af kennslunni þar sem að danirnir eru að koma og fer mikið af næstu viku í ferðalög og verkefni með þeim.

eitt af því  sem spurningarnar fjölluðu um voru öreindir hér er sniðugt um þær :D

sniðugt

Leave a Comment more...

Vika 9 :Þ

by on nóv..02, 2011, under Uncategorized

Já þá er vika 9 liðinn og var hún bara nokkuð venjuleg og fín. En í henni byrjuðum við á nýjum hlekk sem er efnafræði. En í mánudagastímanum var fyrirlestra tími og komst Gyða þá að því að við vorum ekki alveg jafn góð í efninu eins og að hún hefði viljað og leyfði okkur því að velja á milli þess að stilla efnjöfnur eða auðveldara verkefni tengt lotu kerfinu. Ég ákvað að stilla efnajöfnurnar og gekk það ágætlega þegar ég var kominn af stað:P

Efnasamband: t.d. H2O

Efnablanda: t.d Andrúmsloftid

Frumefni : t.d Helín =He

Það sem við erum að leggja áherslu á  er að reyna að átta sig á þessu veseni..

Lotukerfið:P og þeir sem ekki vita hvað það er þá er meira um það hér

 

Leave a Comment more...

Looking for something?

Use the form below to search the site:

Still not finding what you're looking for? Drop a comment on a post or contact us so we can take care of it!