Vika 12 :P
by vidar on nóv..29, 2011, under Uncategorized
Þá er vika 12 á enda og var hún nokkuð venjuleg bara. En í henni byrjuðum við á nýjum hlekk sem heitir jarðfræði. Í mánudagstímanum var fyrirlestra tími um jarðfræði og var hann að mestu leyti upprifjun frá fyrri árum en auðvitað var einnnig eitthvað nýtt. í fimmtudagstímanum var síðan stöðvavinna um jarðfræði of voru margar stöðvar í boði. Við enduðum síðan vikuna í tölvuverinu og unnum í forriti sem heitir stellarium.
En við áttum að segja aðeins frá stöðvavinnunni á blogginu. Ég komst yfir 5 stöðvar.
Stöð 14 !
Ég byrjaði áþví að skoða lifandi vísindi blað og las þar um skoðaði nokkrar náttúruperlur í heiminum, mér fannst merkilegast loftmynd af ánni Tigró sem er þverá Amasonfljóts í perú. Er 3 km löng frá upptökum til Amasonfljóts.
Stöð 2 !
Skoðaði segulsvið jarðar, Jörðin er 4,56 milljarða ára gömul. Norður og Suður segulskaut víxlast á tímabilum sem geta verið allt frá minna en en 100.000 ár og alveg uppí nokkur milljón ár.
Stöð 1 !
Lásum um jarðfræði og sögu hennar en elstu jarðlög á Íslandi eru um 15 milljón ára gömul !
Stöð 11 !
Lásum um besta útsýni í heimi í blaðinu Lifandi vísindi, fjallar um geimstöð sem tekur myndir af hinum ýmsu hlutum eins og jörðinni, tekur mjög flottar og áhugaverðar myndir !
Stöð 13 !
Fórum inn á vefsíðu og skoðuðum jarðhræringar í heiminum síðastliðna viku, t.d. eldgos eða jarðskjáltfa.
Rakst á tvær fréttir sem mér fannst áhugaverðar þó þær tengist námsefninu kannski ekkibeint hér og hér